Lífið

Kanye West ber við sjálfsvörn eftir kæru

Rapparinn segist hafa orðið að verja sig.
Rapparinn segist hafa orðið að verja sig.
Kanye West ber við sjálfsvörn eftir að hafa verið kærður fyrir líkamsárás og þjófnað. Það var ljósmyndari sem kærði hann eftir að þeir áttust við fyrir utan flugvöll í Los Angeles í júlí síðastliðnum.

Rapparinn á að mæta í réttarsal 10. október þar sem kæran verður tekin fyrir. Í myndskeiði sést West reyna að hrifsa myndavélina af ljósmyndaranum sem féll þá til jarðar.

Í svari sem lögfræðingur West sendi dómstólum segist rapparinn nauðsynlega hafa þurft að verja sjálfan sig og því fór sem fór. Ef hann verður fundinn sekur þarf hann að dúsa í fangelsi í mesta lagi í eitt ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.