Fólk dansar eins og það hefur skap og getu til Sara McMahon skrifar 21. september 2013 10:00 Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Berglaug Guðmundsdóttir, Hólmfríður Gunnlaugsdóttir og Halla Kjartansdóttir standa fyrir styrktarballi í minningu tveggja vina sinna er létust úr krabbameini. Fréttablaðið/vilhelm „
Þetta er í raun „ballið hennar Beggu“ en það var hún sem átti upphaflegu hugmyndina að því að við vinkonurnar blésum til dansleiks og byðum öllu skemmtilega fólkinu sem við þekktum. Þegar hugmyndin kom fyrst upp fyrir um tíu árum eða svo þá töldum við hana afar djarfa og skutum henni stöðugt á frest enda töldum við að sjálfsögðu nógan tíma til stefnu, en ótímabært fráfall þeirra Steingríms og Beggu með aðeins rúmlega árs millibili varð okkur áminning um að það væri ekki eftir neinu að bíða með ballið,“ segir Halla Kjartansdóttir framhaldsskólakennari. Hún og fjórar gamlar menntaskólavinkonur hennar standa að dansleik í Iðnó í kvöld til að heiðra minningu tveggja góðra vina sem létust úr krabbameini langt fyrir aldur fram með rúmlega árs millibili. Þau hétu Bergþóra Jónsdóttir og Steingrímur Eyfjörð Guðmundsson. „Við pöntuðum Iðnó fljótlega eftir áramót og þegar það var búið varð ekki aftur snúið,“ útskýrir Halla. Hljómsveitin Magga Stína og Hringir mun spila fyrir dansi og mun allur ágóði renna til Krabbameinsfélagsins. Að sögn Höllu býst hópurinn við fullu húsi, en salurinn rúmar um tvö til þrjú hundruð manns. „Þetta er opið öllum, við viljum gjarnan fá ungu kynslóðina líka, þetta er ekki bara ætlað okkur gamlingjunum. Þó þetta kallist dansleikur þá ætlum við ekki að dansa gömlu dansana, fólk dansar bara eins og það hefur skap og getu til.“ Húsið opnar klukkan 21 og aðgangseyrir er 3.000 krónur.
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira