Lífið

Berndsen og Geiri Sæm í eina sæng

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Davíð Berndsen og Geiri Sæm bregða sér í eitís-gallann.
Davíð Berndsen og Geiri Sæm bregða sér í eitís-gallann. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Tveir ólíkir tónlistarmenn leiða saman hesta sína í sjónvarpsþættinum Hljómskálanum annað kvöld. Þar munu Davíð Berndsen og Geiri Sæm flytja lagið Santa Fe úr smiðju Geira í nýrri eitís-útsetningu Davíðs Berndsen. Sá síðarnefndi er þekktur fyrir grípandi eitís-laglínur sínar.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun samstarfið hafa gengið mjög vel en Berndsen hefur litið upp til Geira allt frá því hann var í hljómsveitinni Pax Vobis. Ekki fæst staðfest hvort samstarfið muni halda áfram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.