Líf með og án kolvetna 20. september 2013 07:00 Anna Sigríður Ólafsdóttir, dósent í næringarfræði á menntavísindasviði Háskóla Íslands og Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor á heilbrigðisvísindsviði eru meðal fyrirlesara á ráðstefnunni.
Listin að velja – ráðstefna um heilsu og holdafar fer fram í Salnum í Kópavogi í dag. Félag fagfólks um offitu stendur fyrir ráðstefnunni og eru fjölmörg áhugaverð erindi á dagskrá. Fyrir hádegi mun fagfólk sem stundar rannsóknir á offitu kynna þær og niðurstöður sínar en eftir hádegi verða fjölbreyttir fyrirlestrar ætlaðir öllum sem hafa áhuga á heilbrigðum lífsstíl á dagskrá. Þær Anna Sigríður Ólafsdóttir, dósent í næringarfræði á menntavísindasviði Háskóla Íslands og Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor í sama fagi á heilbrigðisvísindsviði, flytja til að mynda erindi sem ber yfirskriftina Kúrar og kolvetni – heilsa eða hætta? klukkan 14.30. „Við ætlum að ræða líf með og án kolvetna í sinni víðustu mynd en kolvetnasnauðir kúrar hafa verði ofarlega á baugi að undanförnu. Við ætlum að horfa sérstaklega á frúktósann eða ávaxtasykurinn og taka fyrir hvort hann sé tengdari offitu en annar sykur. Þá komum við inn á kolvetnasnauðu kúrana, föstur og nýjar norrænar næringarráðleggingar sem verða kynntar í byrjun október.“ En gera kolvetnin okkur feit? „Þetta snýst allt um samsetningu, magn og gæði. Við þurfum til að mynda mörg að auka trefjaneysluna en til þess að ná því markmiði þarf að innbyrða kolvetnarík matvæli. Fólk þarf því að geta fetað einhvern meðalveg og lært bæði að temja sér hóf og huga að gæðum matvæla. Umfram allt leggjum við þó áherslu á að fólk leitist eftir einstaklingsmiðuðum ráðleggingum hjá fagfólki í heilbrigðisstéttum. Það sama hentar ekki öllum og það er meira en að segja það að ætla í sífellu að hlaupa á eftir nýjum og nýjum kúrum og að gera hlutina alfarið upp á eigin spýtur. Þetta er flóknara en svo og þarf að skoða útfrá öllum hliðum. Það er engin töfralausn til,“ segir Anna Sigríður. Hún segir allflesta kúra snúast um að sleppa einhverju; annað hvort ákveðnum fæðutegundum eða að sleppa því að borða yfirleitt. „Þeir miða þó að því sama og hefðbundnar ráðleggingar fyrir fólk sem vill léttast - að það nái að fækka hitaeiningum. Spurningin er hins vegar hvernig fólk ætlar að halda út og skapa sér lífsstíl sem hentar,“ Meðal annarra erinda á ráðstefnunni má nefna fyrirlestur Guðlaugs Birgissonar, sjúkraþjálfara á offitu – og næringarsviði Reykjalundar um langtímaárangur af offitumeðferð á Reykjalundi og erindi Tryggva Þorgeirssonar, læknis og lýðheilsufræðings, Skynsemin ræður – eða hvað?. Nánari upplýsingar er að finna á www.ffo.is. Ráðstefnan stendur frá 9 til 16.30 en ýmist er hægt að sækja hana alla eða hálfan daginn.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira