Lífið

Heimsmeistarinn í módel fitness er Margrét Gnarr

Marín Manda skrifar
Margrét Edda Gnarr lifir heilbrigðu lífi og segist nánast búa í Sporthúsinu
Margrét Edda Gnarr lifir heilbrigðu lífi og segist nánast búa í Sporthúsinu
Á yngri árum æfði hún listdans og skauta. Svo lenti hún í hræðilegu einelti og fór að berjast við átröskun. Margrét Edda hefur upplifað ýmislegt um ævina. Hún ákvað þó að taka í taumana, fara í sjálfsskoðun og byggja sjálfa sig upp bæði líkamlega og andlega. Hún fann sig í taekwondo og í dag er hún með svarta beltið í sportinu. Um síðastliðna helgi varð hún fyrsti Íslendingurinn sem hlýtur heimsmeistaratitilinn í bikinifitness. 

Til hamingju með titilinn heimsmeistari í bikinifitness 2013. Segðu aðeins frá keppninni.

„Keppnin er á vegum IFBB, sem er stærsta og þekktasta fitness-samband í heimi. Þetta er A-mót sem er heimsmeistaramót en þau stærstu á hverju ári eru þetta mót og Evrópumeistaramótið. Það er mjög erfitt að fá keppnisréttindi og í mörgum löndum eru haldin þó nokkur úrtökumót til að fá að taka þátt í þessu. Hægt er að vinna sér inn atvinnuskírteini og engum Íslendingi hefur tekist það hingað til.“

Hvernig líður þér á sviðinu, ertu aldrei stressuð?

„Jú, ég er það, sérstaklega áður en ég fer á svið. Þá þarf ég að vera dugleg að minna sjálfa mig á það hve langt ég er komin. Þegar ég labbaði á svið í úrslitum fann ég fyrir rosalega miklum stuðningi frá salnum sem minnkaði stressið mikið. Hópurinn frá Bretlandi var mjög hrifinn af mér og hin Norðurlöndin hvöttu mig áfram. Ég fór síðan nánast í „blackout“ þegar fyrsta sætið var tilkynnt á verðlaunaafhendingunni. Svo þegar íslenski þjóðsöngurinn var spilaður átti ég ansi bágt með mig því það var svo tilfinningaþrungin stund.“

Hvað fékkstu í verðlaun og hvað þýðir þessi titill fyrir þig?

„Ég fékk stóran bikar og risamedalíu en aðalverðlaunin voru að sjálfsögðu atvinnuskírteinið. Þetta þýðir að nú get ég orðið atvinnumaður í fitness og verð því fyrsti Íslendingurinn með þessi réttindi. Þá get ég tekið þátt í stærri mótum með öllum stjörnunum í fitness-sportinu. Þetta hefur verið draumurinn minn síðan ég byrjaði í þessu.“

Hve margar fóru út í keppnina að þessu sinni?

„Við vorum fjórar sem fórum en það voru Olga Helena, Auður Jóna og Karen Lind. Karen Lind lenti í 12. sæti. Hún var í rosalega sterkum flokki en það voru margar stjörnur í hennar flokki. Þær voru rosalega flottar á sviðinu en þetta var þeirra fyrsta mót svo þær fengu mjög góða reynslu í þessari keppni. Ég fór einmitt á HM í fyrra og það hjálpaði mér gríðarlega mikið núna.“

Í góðu andlegu formi

Hvaða lærðirðu af mótinu í fyrra?

„Ég hefði örugglega ekki unnið núna hefði ég ekki farið í fyrra og séð hvernig þetta virkar. Það er allt öðruvísi standard á þessum evrópsku mótum en hefur verið hér á Íslandi. Íslenskar stelpur eru mikið stæltari en gengur og gerist í Evrópu eða bara í Bandaríkjunum.

Við höfum ekki haft nóga þekkingu á þessum flokki, bikinifitness. Við vissum bara ekki betur. Maður gat bara skoðað myndbönd og myndir, sem geta blekkt mikið. Í fyrra var ég orðin alltof mössuð og fékk ekki mörg stig fyrir það.“

Hvað þurftir þú að gera til að breyta þér og hve langan tíma tók það?

„Eftir heimsmeistaramótið í fyrra keppti ég á bikarmeistaramótinu og köttaði mig ágætlega fyrir það en náði ekki að tóna mig niður. Í hálft ár á eftir reyndi ég að tóna mig niður á eins heilbrigðan hátt og mögulegt var. Ég vildi alveg keppa á Íslandsmeistaramótinu og fleiri mótum en ég vildi ekki taka alltof harða niðurtónun. Ég fór því að einbeita mér að brennslu og sleppti lyftingum í tvo mánuði. 

Svo byrjaði ég í þjálfun hjá Jóhanni Norðfjörð og hann fékk næringarfræðing til aðstoða mig.“ 

Það eru sem sagt heilmikil vísindi á bak við svona kropp?

„Já, líkaminn þarf tíma til að jafna sig svo hann fari ekki í sjokk eftir keppni. Sumar stelpur fara að borða það sem þær vilja eftir mót og þyngjast alltof hratt. Ég og þjálfarinn minn erum sammála því að manni á aldrei að líða illa. Þá er verið að gera eitthvað vitlaust.

Mér hefur aldrei liðið jafn vel og núna í niðurskurði. Ég upplifði mig aldrei utan við mig. Þú þarft fyrst og fremst að vera andlega sterk. Þú ert að koma þér í besta form lífs þíns og ert að fara á svið og láta aðra dæma þig. Það er alls ekki fyrir alla.“ 

Snertir ekki ólögleg efni

Hve lengi varstu búin að undirbúa þig fyrir þessa keppni?

„Ég var alveg tvö ár að því, enda var ég rosalega mjó þegar ég byrjaði og þurfti að byrja á því að bæta á mig vöðvamassa. Ég hef haft það að leiðarljósi að fara alls ekki of geyst í hlutina og vildi því byggja þetta upp hægt og rólega. Ég hef aldrei verið að nota nein ólögleg efni til að hjálpa til við það eins og sumir virðast gera.“ 

Margrét og kærastinn Björn Þorleifsson á góðri stundu.
Er það satt að „six pack“ er best fenginn með stífu mataræði?

„Að öðlast flottan „six pack“ er rosalega genetískt, því miður, og fer mikið eftir þínum íþrótt-bakgrunni. Margir eru að gera kviðæfingar mörgum sinnum á dag en það sem skiptir mestu máli er að halda mataræðinu hreinu. Borða mikið af grænmeti, mögru kjöti, hnetum og öðru slíku. Með æfingum kemur hann smátt og smátt í ljós. Mataræði er alveg 70% partur af þessu og æfingar eru einungis 30%.“

Módelfitness er oft gagnrýnt

Finnst þér módelfitness mæta mikilli neikvæðri gagnrýni? 

„Maður finnur rosalega mikið fyrir því. Það verða alltaf neikvæðar raddir en þetta er orðið svolítið þreytt. Maður reynir að einbeita sér að jákvæðri gagnrýni og hafa húmor fyrir þessu. Þegar ég set inni mynd á Facebook fæ ég kannski 500 athugasemdir á myndina og þá eru kannski tíu neikvæð. Ég passa mig á að láta ekki draga mig inn í þetta drama.“

Margrét Gnarr með hundinn sinn.
Sigraðist á átröskun og einelti

Hefurðu látið neikvæðnina hafa áhrif á þig?

„Það hefur kannski aðallega verið vegna bloggfærslu sem ég gerði varðandi veikindasögu mína. Það var mjög mikill stuðningur frá fólki eftir þetta en færslan féll ekki í kramið hjá vissum hópi, sem kommentaði neikvætt. Ég var lengi að díla við átröskun og ég vildi vekja athygli á því að hægt sé að tengja átröskun við allar íþróttir, einelti, uppeldi og margt annað. 

Mér finnst ósanngjarnt að tengja það eingöngu við fitness. Það er miklu meira á bak við átröskun. Ég tel ekki að fitness hafi bjargað mér. Þegar ég var yngri taldi ég mig þurfa að vera öðruvísi og fann fyrir mikilli pressu að þóknast öðrum. Áður en ég fór í fitness fór ég í gegnum 12 spora kerfið og fór í mikla sjálfsskoðun til að öðlast meira sjálfstraust. Þegar ég var komin með sjálfstraustið vildi ég ögra sjálfri mér. Fitness er lífsstíll en þú ert ekki alltaf í niðurskurði. Inn á milli ertu bara að borða rétt og hollt.“

Þarna er hún lítil stelpa.
Með bloggfærslunni segist Margrét Edda hafa verið að gera upp ýmis gömul mál þar sem hún var að viðurkenna og segja frá einelti sem hún upplifði sem krakki og unglingur. Einelti var mikið og margoft þurfti móðir hennar að ræða við skólayfirvöld en ekkert gerðist. Margrét Edda segist hafa upplifað mikla þöggun og verið mjög einmana. 



Öðlaðist styrk með Taekwondo

Þú segir frá eineltinu í bloggfærslunni. Hvernig var sú upplifun?

„Ég upplifði mikið einelti þegar ég var í kringum 13-14 ára. Ég var örlítið yfir kjörþyngd og leið almennt illa á þessu tímabili. Það var einn strákur sem bannaði mér að mæta upp í frístundaheimili því hann þoldi mig ekki. Það kom tímabil þar sem átti bara að reka mig úr skólanum því ég var nánast hætt að mæta. Mér leið bara svo illa þar. Mamma fór á marga fundi með kennurum og oftast var bara reynt að þagga þetta niður og mér kennt um. 

Eins og það væri mér að kenna að krökkum væri illa við mig. Svo byrjaði ég að æfa taekwondo og fékk meira sjálfstraust því þar voru allir vinir og enginn að gagnrýna mig. Þá vildi ég ekki mæta í skólann heldur vera á taekwondo-æfingum öllum stundum. Ég fór að æfa á tveimur stöðum og annar þeirra var í Hafnarfirði. Ef ég átti ekki pening í strætó línuskautaði ég þangað. Þetta var minn helgistaður.“

Margrét Gnarr er í sínu lífsins besta formi.
Hvernig tekur fjölskyldan þín þessum lífsstíl? Er ekki pabbi þinn stoltur af þér? 

„Mamma hefur alltaf stutt mig og er algjört æði. Þegar það er matarboð og hún eldar lambakjöt þá gerir hún sér kjúkling fyrir mig. Mamma og pabbi skildu þegar ég var 11 ára en ég veit að pabbi er líka stoltur af mér.“

Hvernig er það að vera dóttir borgarstjórans? 

„Það er bara eins og að eiga venjulegan pabba.“

Hverjir eru framtíðardraumarnir?

„Ég fer í atvinnumennskuna eftir áramót og fæ vonandi boð um að keppa sem pro á Arnold Classic.  Draumurinn er að fá að keppa á Olympía. Svo ætla ég bara að einbeita mér að þjálfuninni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.