
D&G er ég búin að eiga í mörg ár og þær eru alltaf eins og nýjar. Ég er ein af þeim sem þarf að eiga nokkra „blazera“ og þessi kóngablái er til núna í Central og er klárlega í uppáhaldi.
Er algjör stígvélaköttur og þessi stígvél eru klárlega í uppáhaldi hjá mér.

Maður getur ekki verið án æfingagalla. Þessar æfingabuxur eru þær bestu sem ég veit um, ég fékk þær hjá Hummel.

Leddari, rifnar gallabuxur, flatbotnaskór og klútur, það er alltaf „basic“.

Svo elska ég allar gallabuxur með teygju í, svo er svarti leðurjakkinn með gylltu að koma í Central og ég varð ástfangin af honum strax, pinnahælar klikka ekki við gallabuxur.