Uppáhaldsflíkur herranna Marín Manda skrifar 23. september 2013 11:15 Steinarr Lár
Nokkrir vel valdir og áhugaverðir karlmenn voru fengnir til að tjá sig klæðaburð sinn og segja frá uppáhaldsflíkinni sinni. Steinarr Lár, eigandi Kúkú Campers húsbílaleigunnar.BomsurnarHvernig myndir þú lýsa stílnum þínum? „Ég á einar góðar brúnar buxur sem ég miða allt út frá. Öll föt sem ég kaupi passa við þær. Með þessu passa öllu föt sem ég á saman og ég þarf því aldrei að eyða tíma fyrir framan klæðaskápinn.“Af hverju eru bomsurnar uppáhalds? „Sorel-bomsurnar eru eins og að vera á 38“ breyttum jeppa, það er ekkert sem stoppar mig. Ég hlakka til vetrarins og sérstaklega asahlákudaga þegar ég ryð mér leið eins og loðfíll í gegnum miðbæinn.“Hvar voru þær keyptar? „Í Ellingsen."Einar SmárasonEinar Smárason, Varaformaður Stúdentafélags HR.Sokkarnir Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum? „Dagsdaglega er hann nokkuð casual og smart en ég hef mikið dálæti á að klæðast jakkafötum um helgar og þegar færi gefst.“Af hverju eru þessir sokkar uppáhalds? „Það er svolítið erfitt að velja alveg eina uppáhaldsflík en þessa dagana eru litríkir sokkar í miklu uppáhaldi hjá mér og þá sérstaklega einir fjólubláir.“Hvar eru sokkarnir keyptir? „Þeir heita Happy Socks og ég keypti þá í Dr. Denim á Laugaveginum.“Róbert RóbertssonRóbert Róbertsson starfar á kaffihúsinu Kaffi Kompaníið á Kjarvalsstöðum.LeðurjakkinnHvernig myndir þú lýsa stílnum þínum?„Ég klæðist bara því sem mér finnst flott og því sem fer mér vel. Skyrtur, rúllukragabolir, peysur og jakkar. Ég kaupi oft frá sömu merkjunum. Ég á til dæmis allar týpurnar af Farmers Market-buxunum af því að þær passa mér vel. Af hverju er þessi jakki í uppáhaldi? „Hann er í uppáhaldi vegna þess að ég er búinn að eiga hann svo lengi. Ég keypti hann þegar ég var sextán og hann er búinn að ganga með mér í gegnum súrt og sætt. Hann hefur farið með mér fimm sinnum á Hróarskeldu, þrisvar á Old Trafford og hundrað sinnum á Bakkus svona til að nefna eitthvað. Hann var eiginlega fyrsti töffarajakkinn minn og mætti kannski segja að hann hafi markað ákveðið upphaf hjá mér hvað fatavalið snertir.Hvar var hann keyptur? „Ég keypti hann í Spútnik á 17.900 árið 2006. Mér fannst það rosalega mikið þá en hann er alveg búin að borga fyrir sig og rúmlega það.“
Mest lesið „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Lífið Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Leikarinn Sam Neill er látinn Lífið Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Fleiri fréttir „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Sjá meira