Fólk er hætt að vera skrítið Kjartan Guðmundsson skrifar 21. september 2013 12:00 Helgi Björnsson ætlar að skella sér til Brasilíu ef Ísland kemst á HM í knattspyrnu. Björg Magnúsdóttir vill ekki heimsækja landið um leið og allar helstu fótboltabullur heimsins. Fréttablaðið/Valli
Byrjum á byrjun. Hvað vitið þið hvort um annað? Helgi: „Ég verð að viðurkenna að ég hef séð þig í fjölmiðlum á þessu ári í tengslum við útkomu bókarinnar þinnar, Ekki þessi týpa, en þá er það upptalið.“Björg: „Manstu ekki þegar við hittumst fyrir utan Kaffibarinn eldsnemma á sunnudagsmorgni í sumar? Við vorum að leita okkur að eftirpartíi?Helgi: „Jú, einmitt! Mér fannst ég kannast við þig. Nú verð ég eiginlega að lesa bókina.“Björg: „Ég á eintak til að selja þér“.Helgi: „Fæ ég afslátt?“Björg: „Við getum kannski haft vöruskipti?“Helgi: „Já, þú færð disk og ég bók. Las ég ekki að bókin þín væri skvísubók en samt ekki skvísubók?“Björg: „Jú, þessi skvísubókastimpill er svo þröngur og getur auðveldlega útilokað fullt af lesendum sem gætu haft gaman af bókinni. Þetta er bók fyrir skvísur af báðum kynjum og á öllum aldri. Þú getur alveg verið jafn mikil skvísa og ég.“Helgi: „Ég er svaka skvísa.“Björg: „Já, það dylst engum. En ég man eftir því þegar ég sá þig í fyrsta skipti. Það var í þáttunum um Nonna og Manna og þú lékst heilagan smaladreng.“Helgi: „Nei, ég lék einn af vondu köllunum.“Björg: „Ég skil. Þetta hefur skolast eitthvað til í minninu. En mig langar líka til að spyrja þig um tvennt, í fyrsta lagi pælinguna að baki jólalaginu Ef ég nenni og svo frasann „Eru ekki allir sexí?“Helgi: „Ég samdi hvorki lagið Ef ég nenni né textann, en ég gerði einu sinni heiðarlega tilraun til að finna einhverja hulda meiningu í textanum. Með því að grafa djúpt ofan í Íslenska orðabók gat ég fundið þá langsóttu skýringu að það að nenna þýddi í raun að þykja dálítið varið í viðkomandi. Ég held samt að höfundurinn hafi alls ekki haft slíkt í huga heldur hafi þetta verið hugsað sem brandari. Svo er auðvitað spurning hvort lagið hefði orðið svona vinsælt ef spurningin hefði verið orðuð öðruvísi.“Björg: „Ég held ekki, því þessi spurning kveikir í fólki. Hún er svo óvænt.“Helgi: „Sammála því. Frasinn „Eru ekki allir sexí“ varð til á tónleikum á danshúsinu 1929 á Akureyri í kringum 1990. Í laginu Blautar varir er sagt „Segja mér að þú sért sexí“ í viðlaginu svo ég kynnti lagið á þennan hátt. Svo varð þetta að frasa og nú rúmum tuttugu árum síðar er þetta orðið að vörumerki og frasinn lifir sjálfstæðu lífi.“Björg: „Ég veit ekki hvað þú átt mörg börn, en myndirðu segja að þessi frasi sé eins og fjórða barnið þitt?“Helgi: „Ég á þrjú börn.“Björg: „Í alvöru? Vá! Ég er alltaf að leita mér að svona vörumerkis-frasa til að enda allar fréttir á. Eitthvað í líkingu við „And that‘s the way the cookie crumbles!“, en samt á íslensku.“Helgi: „Svona fór um sjóferð þá? Nei, sá frasi gæti orðið ansi svartur ef hann er notaður eftir vitlausa frétt. En ég skal hjálpa þér að finna eitthvað gott.“Ítalirnir flottirAfrek íslenska knattspyrnulandsliðsins eru á allra vörum. Ætlið þið að skella ykkur til Brasilíu ef við komumst á HM?Björg: „Ég hef enga þekkingu á þessum málum en ég væri alveg til í að fara til Brasilíu. Ég myndi samt aldrei í lífinu fara þangað á sama tíma og allar helstu fótboltabullur heimsins. Ég er með Kolbrúnu Bergþórsdóttur í liði og spyr hvers vegna ætti að horfa á fótbolta þegar hægt er að lesa bók“.Helgi: „Það er rosalega gaman að fylgjast með landsliðinu og þessum jákvæðu þjóðfélagslegu áhrifum sem velgengnin hefur í för með sér. Vonandi skila þau sér inn í hagkerfið líka, en ég á eftir að sjá það gerast. Ég er yfirleitt bjartsýnn en ég sé það ekki gerast að við komumst alla leið til Brasilíu. Samt ætla ég að skella mér til Ríó og ef við komumst ekki á HM eru ýmsir aðrir möguleikar í boði. Ég hef til dæmis alltaf verið hrifinn af ítalska landsliðinu.“Björg: „Þar erum við sammála. Mér finnst Ítalirnir flottir, bæði útlitslega og knattspyrnulega séð.“Helgi: „Svo bjó ég líka á Ítalíu og liðið hefur öðlast stað í hjarta mínu. Þýska landsliðið líka, enda bjó ég þar.“Björg: „Ég bjó í London í eitt ár en það hefur ekkert skilað sér inn í boltann. Það eru aðrir hlutir við breska menningu sem ég kann vel við.“Helgi: „Fish‘n‘chips?“Björg: „Já! Alltaf á þriðjudögum!“Allir eru einsHljómsveitin Stjórnin stígur á svið á ný á 25 ára afmælistónleikum í Háskólabíói í lok október. Ef þið mættuð vekja eina hljómsveit upp frá dauðum fyrir eina tónleika, hver yrði fyrir valinu?Helgi: „Þetta er erfið spurning. Ef ég mætti vekja fólk til lífsins væri til dæmis gaman að sjá The Doors á tónleikum. Eða Jimi Hendrix. Hann var magnaður tónlistarmaður og hafði mikil áhrif á þá sem komu á eftir honum.“Björg: „Ég myndi standa með fortíð minni sem fyrrverandi skinka og vekja TLC til lífsins.“Helgi: „Já, þær sem sungu Waterfalls? Það er rosalega flott lag“.Björg: „Ég væri til í að sjá TLC flytja Waterfalls með rappkaflanum og öllu í troðfullum sal í Hamborg eða Dublin. Þá myndi ég líka klæða mig í gamla skinkubúninginn.“Helgi: „Hvernig er skinkubúningurinn?“Björg: „Í dag er hann orðinn allt öðruvísi og miklu flottari en í gamla daga.“Helgi: „Er það slæmt?“Björg: „Já, því það er svo gaman að hafa verið í algjörlega grilluðum fötum. Við vinkonurnar vorum í þykkum böffalóskóm, hvítum tart-buxum, um það bil sjö hettupeysum og með hvítan augnblýant. Núna finnst mér pínu leiðinlegt hvað netið er orðið allsráðandi. Það eru allir að neyta sama efnisins á netinu og mér finnst vanta hólfaða tísku, fólk virðist ekki lengur tilheyra hópum sem klæða sig furðulega.“Helgi: „Því er ég algjörlega sammála. Tískuklæðnaður er svo leiðinlegur í dag því allir eru eins. Það vantar allt litróf í þetta, ekki síst hjá popp- og rokktónlistarfólki.“Björg: „Það er eins og fólk sé hætt að vera skrítið. Það finnst mér leiðinlegt því skrítið fólk er svo áhugavert og skemmtilegt.“Hefur heyrt verri pikköpp-línurÍ vikunni bárust þær stórfréttir að að Hannes Friðbjarnarson, trymbill í hljómsveitinni Buff, hefði bjargað kvikmyndastjörnunni Matthew McConaughey um munntóbak á Svínafellsjökli. Hver er frægasti einstaklingurinn sem þið hafið bjargað um eitthvað á lífsleiðinni?Helgi: „Fréttin um munntóbakið var frábær. Ég hefði átt að koma því á framfæri þegar ég reddaði Harvey Keitel sígarettu hér um árið.“Björg: „Nei, vá!“Helgi: „Já. En það eru reyndar mörg ár síðan, á Cannes-kvikmyndahátíðinni árið 1993 þar sem ég var staddur ásamt fólkinu sem stóð að Sódómu Reykjavík. Við vorum þarna nokkur stödd á Majestic-hótelbarnum, sem er einn af börunum þar sem fræga fólkið hangir meðan á hátíðinni stendur, sátum í sófa og fylgdumst með því hvernig stjörnurnar báru sig að þegar þær gengu inn á staðinn. Hver hefur nefnilega sinn eigin „entrance“, sumir koma veifandi, aðrir strunsa inn og þar fram eftir götunum. Þá fékk einhver þá snilldarhugmynd að við myndum öll búa til okkar eigin „entrance“. Ég labbaði aftur á bak inn á barinn og þóttist eiga í hrókasamræðum við einhvern úti, en gekk þá beint á Harvey Keitel, sem Jón Ólafsson hafði reyndar kynnt mig fyrir kvöldið áður. Hann bað mig um sígarettu og við reyktum eina saman og spjölluðum. Björn Jörundur var þarna líka, en hann kom seint og labbaði inn á barinn rétt á eftir leikkonunni Rosanna Arquette. Bjössi bankaði í öxlina á henni og spurði: „Are you alone?“ Þetta fannst henni svo dónalegt að hún missti sig alveg.“Björg: „Maður hefur nú fengið verri pikköpp-línur en þetta!“Helgi: „Já, en þú ert ekki fræg Hollywood-stjarna.“Björg: „Nei, reyndar ekki. En ég átti einu sinni alltaf gloss sem gekk undir nafninu sleik-gloss í vinahópnum. Það fór enginn sleiklaus heim sem bar þetta gloss á sig, sem reyndar er hætt að framleiða núna og mikil eftirsjá að.“Helgi: „Var það litlaust gloss?“Björg: „Nei, það var með smá lit og virkaði bæði sem gloss og varasalvi. Mjög hentugt. Eitt sinn var ég nýbúin að bera á mig þetta gloss og þá sagði Silja Hauksdóttir leikstjóri við mig: „Ég verð að fá svona sleik-gloss hjá þér!“ Ég varð að sjálfsögðu við því.“
Mest lesið Listamaðurinn sem gleymdist gjörsamlega Menning Dekurbossinn Hjalti: „Mömmur eru einfaldlega bestar og mín var ein sú allra besta“ Áskorun Brúnkukrems- og karókíkvöld á dagskrá kvenfanga Lífið Af hverju er hvítasunnan haldin hátíðleg? Lífið Þjóðhátíð um raunveruleikaþátt Brynjars: „Það er ekkert í boði“ Lífið Stálheppinn viðskiptavinur N1 vann frítt flug í heilt ár með PLAY Lífið samstarf „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Menning Myrkur Games birta fyrstu stiklu Echoes of the End Leikjavísir Krakkatían: Aldur, tími og Greta Thunberg Lífið Fékk sér Stöð 2 húðflúr í beinni útsendingu Lífið Fleiri fréttir Af hverju er hvítasunnan haldin hátíðleg? „Ertu kannski Íslendingur?“ Brúnkukrems- og karókíkvöld á dagskrá kvenfanga Krakkatían: Aldur, tími og Greta Thunberg Söfnuðu milljón krónum fyrir ungt fólk með krabbamein Fékk sér Stöð 2 húðflúr í beinni útsendingu Vann gullverðlaun fyrir sykurblómaskreytingu Vala Kristín og Hilmir Snær búin að eiga Laufey Lín og Barbra Streisand leiða saman hesta sína Stuð og stemning á „árshátíð íslenskra þungarokkara“ í Stykkishólmi Þjóðhátíð um raunveruleikaþátt Brynjars: „Það er ekkert í boði“ Fréttatía vikunnar: Trump, Parkinson og fótbolti Hélt við konu besta vinar síns Ríkissáttasemjari selur glæsihús undir dönskum áhrifum Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Mátti eiginlega ekki hósta því þá myndi hann kremja hann Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Brynjar skiptir Aroni út Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu Romeo Beckham og Kim Turnbull sögð hætt saman Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi Kveða orðróminn í kútinn: „Það eru engar deilur“ Endurfrumsýning Brúðubílsins: „Lilli er eiginlega bróðir minn“ Opinberar nákvæmar upplýsingar um brjóstaaðgerðina Geðbrigði ríður á vaðið í tónleikaröð á Dillon Í sjokki að sonurinn hafi verið á typpinu Vanvirkar fjölskyldur og hlutverkin sem skilja eftir sár Sjá meira