Fjalla-Steini gengur á öll bæjarfjöll landsins fyrir krabbameinssjúka Marín Manda skrifar 17. september 2013 07:00 Fjalla- steini ásamt Jóhanni Smára ljósmyndara. „
Ég byrjaði að ganga fyrir Ljósið, sem er endurhæfingarstöð fyrir krabbameinssjúka, en svo breytti ég til. Nú er ég að vinna að bók um fjöllin og göngurnar og mun gefa höfundarlaun mín til krabbameinssjúkra barna,“ segir Þorsteinn Jakobsson, göngugarpur og höfundur bókarinnar Íslensk bæjarfjöll sem kemur út næsta sumar. „Markmiðið er að ganga hvert einasta bæjarfjall og sýslu á landinu til að tengja landið saman.“Mikið af fólki hefur áhuga á fjallgöngum og hafa veitt Þorsteini Jakobssyni stuðning á göngunum.Bókin verður byggð upp á leiðarvísum um landið en Þorsteinn segist ekki vilja eigna sér heiðurinn að bókinni þar sem hann fær aðstoð ýmissa aðila. Tveir jarðfræðingar skrifa meðal annars í bókina og í kringum tíu ljósmyndarar alls staðar af landinu myndskreyta. Þorsteinn er lærður leiðsögumaður og meðlimur gönguhópsins Fjallagarpar og gyðjur en hópurinn telur um þrjú þúsund manns. Hann segir að fleiri tugir fólks hafi lagt honum lið í göngunum undanfarin ár. „Mér líður hvergi eins vel og úti í náttúrunni og svo langaði mig bara að láta gott af mér leiða og minna fólk á að vera jákvætt. Ég gef allt sem ég safna en ég lét einnig búa til eitt þúsund söfnunarbauka sem dreift er víðs vegar um landið í göngunum. Ég á núna aðeins eftir að ganga níu fjöll á landinu til að klára bókina.“ Þorsteinn hefur góða þekkingu á hálendinu en hann er lærður leiðsögumaður. Hann segir að í framhaldi af þessu verkefni muni hann uppfylla gamlan draum og ganga á Kilimanjaro, hæsta fjall Afríku. Hann stefnir á að ganga á hæstu fjöll allra heimsálfanna.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira