Ástríður 2 hefst á Stöð 2 á sunnudaginn 13. september 2013 22:00 Ný þáttaröð af Ástríði. „
Þegar við skrifuðum þættina veltum við því fyrir okkur hvar okkur fyndist eðlilegt að Ástríður væri stödd, hvaða veggi hún þyrfti að rekast á og bjuggum þá svo til. Ástríður hefur breyst. Hún hefur forherst eftir ástarsorg og tekur hlutina á hörkunni núna,“ segir Ilmur Kristjánsdóttir, leikkona og handritshöfundur hinna vinsælu sjónvarpsþátta um Ástríði. Þegar sagan hefst í annarri þáttaröð er Ástríður orðin yfirmaður hóps starfsmanna í skilanefnd óskilgreinds banka og ekki alls kostar sátt við lífið. „Nei, Ástríður er frekar leiðinlegur yfirmaður,“ segir Ilmur. „Hún bannar til dæmis allt félagslíf í vinnunni og fleira. Undirmenn hennar geta lítið annað gert en tekið þessu. Nú er hún í aðstöðu til að reka fólk svo það þarf að vara sig á henni. Það má segja að hún sé á vondum stað.“ Í fyrstu þáttaröðinni var Ástríður nýr starfsmaður á nýjum vinnustað og hafði ekki mörg tækifæri til að gera gloríur. Aðrir starfsmenn sáu um gloríurnar þá en nú segir Ilmur komið að Ástríði. Fólk muni þó þekkja sína Ástríði aftur. „Já, já, við erum ekki að tala um persónuleikabreytingar. En Ástríður þarf að þroskast og læra og það gerir hún í þessari seríu. Vonandi.“Silja HauksdóttirÓþekktir örlagavaldar „Aðstæður Ástríðar hafa breyst, í starfi og lífi, þegar við hittum hana fyrir í annarri seríu. Það hefur ýmislegt gerst milli sería sem áhorfendur fá að finna út smám saman eftir því sem líður á,“ segir Silja Hauksdóttir leikstjóri. Upptökum á annarri seríunni af Ástríði er lokið og hefur þáttaröðin göngu sína á Stöð 2 á sunnudaginn. „Þetta gekk allt frábærlega vel. Allir vissu vel hvað þeir voru að gera og við vorum vel undirbúin. Í tökunum sjálfum vorum við bara að gera gott betra,“ segir Silja og lofar því að aðdáendur Ástríðar verða ekki sviknir. „Það svífur sama stemning yfir vötnum í nýju seríunni. Það er helst að gengið sé lengra í húmor og drama. Áhorfendur munu hitta allt sitt fólk aftur og gott betur því það koma fram nýjar persónur sem verða örlagavaldar. Okkar gömlu vinir eru samir við sig en margir þeirra þó að feta nýjar slóðir,“ segir Silja en fæst ekki til að ljóstra fleiru upp. Hún segir vel líklegt að seríurnar um hina seinheppnu Ástríði verði fleiri. „Hún á allavega nóg inni hún Ástríður og er langt því frá orðin fullnuma í að skapa vandræði. Hún er bara mannleg og breysk eins og við öll. Það er Ástríður í okkur öllum.“
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira