Frumkvöðlar sem þora 13. september 2013 15:45 Eitthvað annað hefst á Stöð 2 í október. „
Það hefur lengi angrað mig hvað umræðan um atvinnusköpun á Íslandi er takmörkuð. Þessi einhæfa umræða um stóriðju eða eitthvað óskilgreint og afar loðið „annað“ er ekki líkleg til að hvetja fólk til þess að búa til alls konar störf á Íslandi. Og eftir að hafa unnið í öll þessi ár við fréttir, þar sem maður fær illt auga frá vaktstjórum ef fréttin er lengri en 90 sekúndur, fannst mér það stórkostlegt tækifæri nú þegar við erum farin af fullum krafti að framleiða íslenskt efni að fá að hitta fólk sem er að gera „eitthvað annað“,“ segir Lóa Pind Aldísardóttir um tilurð væntanlegra þátta sem nefnast einfaldlega Eitthvað annað. „Ég held líka að geðheilsa þjóðarinnar megi alveg við því að fá sögur af skapandi frumkvöðlum, svona inn á milli frétta um milljarðaafskriftir og markaðsmisnotkun hrunsins. Sögur sem vekja innblástur en ekki reiði.“ Þættir Lóu, Tossarnir, vöktu mikla athygli fyrr í sumar og Lóa heldur áfram að fjalla um menn og málefni sem vekja áhuga hennar. „Ég hef einfaldlega brennandi áhuga á fólki sem þorir, fólki sem hefur ástríðu fyrir því sem það gerir og fólki sem hugsar út fyrir rammann. Frumkvöðlar eru svoleiðis fólk, fólkið sem fær hugmynd og er tilbúið að leggja nótt við dag, vinna launalaust ef þörf krefur og jafnvel fresta jólunum ef það er það sem þarf. Við Egill Aðalsteinsson myndatökumaður fengum að verja tíma með alls konar frumkvöðlum í hinum ólíkustu geirum til þess að segja sögu þessa fólks. Og ég dáist óendanlega að svona fólki sem þorir að stíga skrefið út fyrir þægindaramma launþegans og láta drauminn um „eitthvað annað“ rætast.“ Lóa segir sitthvað hafa komið sér á óvart við gerð þáttanna. „Það sem hefur komið mér mest á óvart er hvað það er til öflugt frumkvöðlasamfélag á Íslandi. Því þótt sprotafyrirtæki fái talsverða athygli í fjölmiðlum þá er slík umfjöllun í smáskömmtum þannig að maður fær ekki tilfinningu fyrir umfanginu og fjöldanum. Þau eru svo miklu, miklu fleiri en CCP, Marel og Össur. Ísland er fullt af fólki sem hefur uppgötvað eittvað nýtt og komið því á markað. Ég vona bara að þættirnir verði einhverjum áhorfendum innblástur og frumkvöðlunum fjölgi enn frekar. Eins kom mér á óvart hversu margir frumkvöðlar kváðust vera ofvirkir með athyglisbrest. Það virðist vera eiginleiki sem nýtist vel við nýsköpun.“
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira