Svolítill sjónvarpsplebbi 13. september 2013 17:00 Logi kynnir haustdagskrá Stöðvar 2 í kvöld. „
Ef ég gæti valið þrjár persónur úr mannkynssögunni til að mæta til mín í settið þætti mér fínt að fá Bítlana í hljómsveitarþátt. George gæti þá bara setið undir Ringó og það væri sennilega frekar áhugavert,“ segir Logi Bergmann, sem mætir aftur á skjáinn með Loga í beinni þann 20. september. Logi segir þáttinn verða með svipuðu sniði og áður. „Þetta verður léttur spjallþáttur með skemmtilegri tónlist og áhugaverðum gestum. Mér finnst mikið atriði að fólk fari áhyggjulaust og á réttan hátt inn í helgina og slaki aðeins á. Það er samt ekki þar með sagt að þetta verði bara einhver froða!“ segir Logi og hlær. Gestir Loga þurfa að uppfylla nokkrar kröfur. „Þeir þurfa að vera skemmtilegir, áhugaverðir og hafa frá einhverju að segja. Þá skiptir í raun ekki máli hvort þeir hafi komið áður.“ Eftirminnilegasti gestur Loga er leikarinn og leikstjórinn Benedikt Erlingsson. „Benedikt er skemmtilega óútreiknanlegur og maður lendir dálítið í honum. Hann tók kast á mig í fyrstu heimsókn sinni í þáttinn fyrir hvað ég var mikill plebbi og þátturinn ekki nógu menningarlegur. Þorsteinn Gunnarsson, Jón Gnarr og Anna Svava eru líka í uppáhaldi; svona eins og fólk hefur sennilega tekið eftir,“ segir Logi sposkur. Í kvöld mætir Logi á skjáinn sem gestgjafi í Haustpartíi Stöðvar 2. Hann lofar líflegri skemmtidagskrá og góðum gestum í bland við kynningu á spennandi dagskrárliðum Stöðvar 2 á vetri komanda. Haustpartíið verður sýnt í beinni útsendingu á Stöð 2 klukkan 18.55 í kvöld. „Veturinn er virkilega spennandi á Stöð 2. Það er mikill kraftur í innlenda efninu og alls konar nýir, íslenskir þættir sem ég hlakka til að sjá. Á skjáinn eru líka væntanlegir nýir og freistandi erlendir þættir í bland við gamla kunningja,“ segir Logi og viðurkennir að hann sé dálítill plebbi hvað sjónvarpsáhorf varðar. „Ég er plebbi af því að ég horfi á The Mentalist og American Idol. Ég hlakka svo mikið til að sjá Ástríði, nýju þættina hennar Lóu Pind, Eitthvað annað, og Óupplýst lögreglumál með Helgu Arnardóttur. Einnig Blacklisted með James Spader og 24, sem snýr aftur. Aðrir uppáhaldsþættir mínir eru Bones, Homeland og Orange Is the New Black.“ Til gamans má geta að dagskrá Stöðvar 2 verður opin og ólæst alla helgina.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira