Uppnám vegna tónskáldsins Tsjaíkovskíjs Ólöf Skaftadóttir skrifar 12. september 2013 07:00 Meðal þekktra verka eftir Tsjaíkovskíj er tónlist við ballettana Hnotubrjótinn, Þyrnirós og Svanavatnið. Mynd/Getty
Söguleg mynd byggð á ævi tónskáldsins Pyotrs Ilyich Tsjaíkovskíj er í undirbúningi í Rússlandi. Myndin sýnir Tsjaíkovskíj sem gagnkynhneigðan mann í ástarsorg. Samkvæmt blaðamanni rússneska blaðsins Novaya Gazeta, gerði upprunalega handritið ráð fyrir samkynhneigð Tsjaíkovskíjs, sem meðal annars skrifaði heila sinfóníu um frænda sinn og ást sína á honum. Handritshöfundur myndarinnar segir nú ekkert til í því að tónskáldið mikla hafi verið samkynhneigt. Samkynhneigðir í Rússlandi hafa orðið fyrir miklu mótlæti og ofbeldi síðan lög gegn samkynhneigð í Rússlandi voru samþykkt í maí. Lögin gera það að verkum að ólöglegt er að vera með „samkynhneigðan áróður“. Pútín, forseti Rússlands, varði lögin þegar þau urðu tilefni gagnrýni og mótmæla um allan heim. Hann sagðist ekkert hafa á móti samkynhneigðum og lét meðal annars hafa eftir sér í viðtali að Tsjaíkovskíj hefði sennilega verið samkynhneigður. „Við elskum hann bara vegna tónlistarinnar og hann var frábært tónskáld. Það er það eina sem skiptir máli,“ sagði forsetinn. Hinn 23. september næstkomandi frumsýnir The Metropolitan Opera í New York óperuna Evgeny Onegin, eftir Tsjaíkovskíj. Óperuhúsið er þannig að setja upp sýningu eftir samkynhneigt, rússneskt skáld, með tvo Pútín-stuðningsmenn í aðalhlutverki; Önnu Netrebko, í hlutverki Tatiönu og Valery Gergiev, sem stjórnar óperunni. Óperuhús af þessari stærðargráðu skipuleggja dagskrá sína mörg ár fram í tímann, en nú eru stjórnendur hússins í miklum vandræðum með hvort þeir eigi yfirhöfuð að sýna óperuna. Þegar hefur fjöldamörgum undirskriftum verið safnað gegn því að sýningin verði sett á svið og háværar óánægjuraddir hafa heyrst um uppsetningu verksins í óperunni.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira