Litadýrð yfir Jökulsárlóni Starri Freyr Jónsson skrifar 23. ágúst 2013 14:45 Flugeldasýning við Jökulsárlón líður fólki seint úr minni. MYND/Þorvarður Árnason
Árleg flugeldasýning Björgunarfélags Hornafjarðar og Ferðaþjónustunnar Jökulsárlóni verður haldin við Jökulsárlón á morgun, laugardag. Þetta er fjórtánda árið í röð sem sýningin er haldin en sú fyrsta var haldin árið 2000. Friðrik Jónas Friðriksson, formaður Björgunarfélags Hornafjarðar, segir sýninguna vera alla hina glæsilegustu en hún hefur vaxið ár frá ári. „Aðstandendur flugeldasýningarinnar leggja meiri metnað í sýninguna með hverju árinu sem líður. Upphaf hennar má rekja til þess að starfsmenn ferðaþjónustunnar héldu uppskeruhátíð í lok sumars. Síðan þá hefur hún undið upp á sig og í fyrra mættu um 1.500 manns til að horfa á sýninguna.“ Sýningin hefst kl. 23 að sögn Friðriks og stendur í 40-50 mínútur. „Við byrjum á því fyrr um daginn að raða 150 friðarkertum á ísjaka í lóninu. Síðar um kvöldið er kveikt á kertunum og svo hefst flugeldasýningin. Við skjótum bæði tertum og tívolíbombum upp af ísjökum úti í lóninu og förum á milli á gúmmítuðru til að kveikja í. Ef veður og skyggni verður gott á þetta eftir að verða stórkostleg sjón, enda lýsast ísjakarnir upp í ýmsum litum og birtu frá flugeldunum.“ Stór hluti þeirra sem mæta á flugeldasýninguna eru erlendir ferðamenn að sögn Friðriks en sýningin er vel auglýst á svæðinu. „Auðvitað mæta heimamenn líka, þá helst af Suðurlandinu, enda er þetta stórkostleg upplifun fyrir alla gesti, sérstaklega ef veðrið er gott. Þetta óvenjulega umhverfi hér með ísjökunum gerir auðvitað alla upplifun gjörólíka því sem fólk á að venjast frá öðrum flugeldasýningum.“ Aðgangseyrir er 1.000 kr. en frítt er inn fyrir 12 ára og yngri. „Allur ágóði rennur til Björgunarfélags Hornafjarðar en aðgangseyrir er fyrst og fremst hugsaður til að hafa upp í kostnað vegna flugeldakaupa.“
Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Fleiri fréttir Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Sjá meira