Fá veiðikortið fyrir nætureftirlit Garðar Örn Úlfarsson skrifar 12. apríl 2013 07:00 Samkomulag er um að herða eftirlit með stangveiði við Þingvallavatn til að útrýma veiðiþjófnaði, ólöglegum veiðiaðferðum og sóðaskap. Fréttablaðið/Pjetur „
Meirihlutinn í nefndinni er sammála því að gera þetta svona,“ segir Álfheiður Ingadóttir, formaður Þingvallanefndar, um samkomulag sem felur í sér að ekkert verður af banni við næturveiði í Þingvallavatni. Samkomulagið sem Ólafur Örn Haraldsson gerði við Landssamband Stangaveiðifélaga, Stangaveiðifélag Reykjavíkur og Veiðikortið felur, að sögn Álfheiðar, í sér að þjóðgarðurinn leggur til 250-300 þúsund krónur til að taka upp lágmarksveiðieftirlit að næturlagi. Hún segir það fé verða tekið af 400 þúsund krónum sem áætlað sé að hækkun veiðileyfa skili. Veiðimenn munu einnig leggja sitt af mörkum. Þannig hyggst Veiðikortið fá sjálfboðaliða til að sinna veiðieftirliti um nætur gegn því að fá ókeypis Veiðikort. „Þeir verða þannig hálfgerðir veiðiverðir með skírteini frá Veiðimálastjóra upp á að þeir megi trufla veiðimenn og biðja þá um veiðileyfi,“ segir Ingimundur Bergsson, framkvæmdastjóri Veiðikortsins. „Veiðimenn eru vel sáttir og þetta er líka góð lending fyrir Þingvallanefnd.“ Álfheiður segir samkomulagið verða tekið fyrir á næsta fundi Þingvallanefndar sem stefnt sé á að verði næsta miðvikudag. „Ég er mjög ánægð með að hafa fundið svona mikinn skilning á þeim vanda sem er uppi við Þingvallavatn,“ segir Álfheiður og nefnir sérstaklega veiðiþjófnað og notkun ólöglegrar beitu sem þurfi að stöðva.
Mest lesið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Innlent Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Erlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Erlent Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Innlent Fleiri fréttir Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Sjá meira