Reyndi að stöðva birtingu stuðningslistans Sunna Valgerðardóttir skrifar 12. apríl 2013 07:00 Berglind Svavarsdóttir
Lögmaður Guðnýjar Jónu Kristjánsdóttur, Berglind Svavarsdóttir, reyndi að koma í veg fyrir birtingu stuðningslista með 113 nöfnum í blaðinu Skránni á Húsavík árið 2000. Blaðinu var meðal annars hótað lögsókn en listinn birtist engu að síður. „Við létum kyrrt liggja því við vildum ekki fara niður á þeirra plan og ákváðum bara að trúa því að réttlætið sigraði að lokum,“ segir Berglind. Hún bendir þó á að eitt af því sem listinn gerði að verkum var að miskabætur til Guðnýjar vegna nauðgunarinnar voru hækkaðar, en hann var lagður fram sem sönnunargagn í Hæstarétti og dómarar ákváðu að hækka bæturnar úr 400 þúsund í 500 þúsund „með vísan til óvenjumikillar félagslegrar röskunar“. „Oft hef ég verið réttargæslumaður en ég hef aldrei upplifað svona, hvorki fyrr né síðar. Þetta var algjörlega absúrd mál í alla staði,“ segir Berglind Svavarsdóttir lögmaður. Berglind starfaði sem réttargæslumaður Guðnýjar á Húsavík fyrir um fjórtán árum þegar hún kærði nauðgun og rak mál hennar fyrir dómstólum. „Ég var alveg látin finna það að ég væri ekki réttum megin í málinu, en það var auðvitað ekkert miðað við það sem Guðný þurfti að þola. Hún stóð sig alla tíð eins og hetja.“ Berglind gefur lítið fyrir umræðuna undanfarna daga að svona gömul mál eigi ekki að ræða í dag og vísar meðal annars til orða Sigurgeirs Aðalgeirssonar í Fréttablaðinu í gær að málið væri of erfitt fyrir samfélagið til að vera að rifja það upp í dag. „Auðvitað verður að ræða þetta mál því það verður öðrum víti til varnaðar. Þá er tilganginum náð.“
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Innlent Fleiri fréttir Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Sjá meira