Myndum taka málið upp í dag 11. apríl 2013 07:00 Jón Helgi Björnsson
Jón Helgi Björnsson, formaður bæjarráðs Norðurþings, segir jákvætt að nauðgunarmálið sem hefur legið á Húsvíkingum í þrettán ár sé komið fram í dagsljósið. Hann myndi taka málið fyrir innan bæjarkerfisins ef það kæmi upp í dag. Guðný Jóna Kristjánsdóttir, sem var nauðgað á Húsavík árið 1999, sagði sögu sína í Kastljósinu í vikunni. „Mér fannst Guðný hugrökk og það er gott hjá henni að lýsa sinni upplifun,“ segir Jón Helgi. Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum, fundaði með Sighvati Karlssyni, sóknarpresti á Húsavík, í gær. Guðný hefur upplýst að Sighvatur hafi hvatt hana til að kæra ekki á sínum tíma. Sighvatur sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann sagðist hafa beðið Guðnýju afsökunar. Fréttablaðið ræddi við Húsvíkinga í gær og ljóst er að þeir eru enn klofnir í afstöðu sinni til málsins. Sigurgeir Aðalgeirsson, yfirmaður mannsins sem nauðgaði Guðnýju, segir nóg komið af umfjöllun um málið. „Það er auðvitað erfitt fyrir hann líka,“ segir hann og vísar þar til nauðgarans. „Þetta er mjög erfitt fyrir samfélagið, fyrir hann og miklu fleiri. En fólk er lítið að spjalla um þetta því það vill ekki rifja þetta upp.“
Mest lesið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Sjá meira