Fiskikóngur vonar að hafmeyjan fái frið Freyr Bjarnason skrifar 8. apríl 2013 07:00 Mynd af ókláraðri hafmeyjunni á vegg Fiskbúðarinnar við Sogaveg.
Kristján Berg, sem rekur fiskbúðina Fiskikónginn við Sogaveg, hefur látið mála risastóra mynd af hafmeyju á vegg búðarinnar. Hann var áður með stórt auglýsingaskilti á veggnum en Reykjavíkurborg lét hann fjarlægja það. „Þegar ég byrjaði með fiskbúðina var húsið alltaf útkrotað eða spreyjað, sem er skemmdarverk í mínum huga,“ segir Kristján. Fyrst kom maður frá borginni og málaði yfir krotið en síðar meir var Kristján fenginn til að mála sjálfur yfir það. Hann gafst upp á því á endanum og ákvað að setja auglýsingaskilti upp í staðinn merkt Fiskikónginum, en var gert að taka það niður vegna þess að það þótti of stórt. Þá ákvað hann að ráða til sín veggjakrotarann og listamanninn Þorstein Davíðsson og fá hann til að mála fyrir sig hafmeyjuna. „Ég veit ekki hvort borgaryfirvöld munu æsa sig yfir þessu, ég vona ekki,“ segir Kristján. „Ég er ekki með skilti á húsinu. Þetta er málning og það getur enginn bannað mér að mála húsið mitt. Ég vona að borgin fari ekki að fetta fingur út í þetta.“ Myndin sést vel frá Miklubrautinni og mun því blasa vel við borgarbúum. Aðspurður segist Kristján ánægður með hafmeyjuna, sem verður tilbúin í dag. „Það er ótrúlegt að sjá hvernig hann [Þorsteinn] gerir þetta. Þetta er ekkert smá stórt og ég er montinn yfir því að hafa þetta þarna.“
Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Fleiri fréttir Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Sjá meira