Bar hlutverkið fyrst undir foreldra sína Freyr Bjarnason skrifar 26. mars 2013 11:00 Svandís Dóra bar hlutverkið í leikritinu undir foreldra sína áður en hún samþykkti að vera með. Mynd/Valli
Svandís Dóra Einarsdóttir fer með hlutverk í leikritinu Hvörfum sem fjallar um Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Hún er dóttir Einars Bollasonar, sem sat saklaus í einangrun í 104 daga við rannsókn málsins. „Rúnar Guðbrandsson leikstjóri hringdi í mig og spurði hvort ég vildi vera með,“ segir Svandís Dóra, sem þurfti að hugsa sig um í dálítinn tíma. Hún ákvað fyrst að bera málið undir foreldra sína. „Þau vissu ekkert að það ætti að setja þetta upp og að sjálfsögðu brá þeim svolítið. En þau sögðu að þetta mál væri búið og að þau treystu mér. Ég treysti líka fólkinu sem ég er að vinna með til að búa til góða sýningu. Þegar ég sá hvernig það nálgaðist þetta og hvað það ætlaði að gera með þetta mál sannfærðist ég.“ Rithöfundurinn Sjón skrifar handritið í samvinnu við Stefán Hall Stefánsson og leikstjórann Rúnar. Auk Svandísar Dóru eru í leikhópnum Ólafur Darri Ólafsson, Árni Pétur Guðjónsson, Birna Hafstein, Arnar Jónsson, Friðrik Friðriksson og Stefán Hallur Stefánsson. Guðni Franzson sér um tónlistina og Eva Signý Berger hannar leikmynd. Sýningin verður sett á fjalirnar í Þjóðleikhúsinu 4. maí. Að sögn Svandísar Dóru byggir leiksýningin fyrst og fremst á staðreyndum úr skýrslunum í tengslum við málið. „Mér fannst flott að þeir eru ekki að búa til neina píslarvætti eða leggja neinn dóm á eitt eða neitt. Það er bara verið að skapa sýningu út frá staðreyndum.“ Persóna Einars, föður hennar, kemur við sögu í sýningunni en nöfn hans eða annarra í tengslum við málið koma ekki fram. „Þeir eru þarna fjórmenningarnir, krakkarnir, lögreglan og yfirvöld.“ Svandís Dóra var ekki fædd þegar atburðirnir áttu sér stað árið 1976. Hún kom ekki í heiminn fyrr en átta árum síðar. Aðspurð segist hún ekki kvíða sérstaklega fyrir hlutverkinu þrátt fyrir að það standi henni mjög nærri. „Maður fær alltaf hnút í magann fyrir hverja sýningu, hvort sem það er þessi eða einhver önnur. Ég nálgast þetta eins og allar mínar sýningar. En þarna verður margt sem mun koma fólki á óvart.“
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Sjá meira