Draga í efa að fylgt sé ákvæði virkjanaleyfis Garðar Örn Úlfarsson skrifar 15. mars 2013 06:00 Virkjanaleyfi fyrir allt að 750 megavatta raforkuframleiðslu í Kárahnjúkum var gefið út í september 2002. Fréttablaðið/Pjetur „
Í ljósi gagna sem liggja fyrir viljum við skoða hvort þarna sé hugsanlega pottur brotinn,“ segir Gunnar Jónsson, formaður bæjarráðs Fljótsdalshéraðs, sem vill láta skoða hvort skilmálum virkjanaleyfa Kárahnjúkavirkjunar og Lagarfossvirkjunar sé fylgt. Gunnar segir virkjanaleyfi kveða á um vatnsmagn og vatnsstöðu. „Við viljum að það sé farið yfir hvort það sé verið að brjóta þetta eða ekki. Ég ætla ekki að fullyrða það en við viljum ræða þetta,“ segir hann. Gerður Björk Kærnested hjá Landsvirkjun segir enga skilmála í virkjanaleyfi Kárahnjúkavirkjunar um magn vatns. „Landsvirkjun telur sig vera að uppfylla öll skilyrði virkjanaleyfis en samkvæmt skilmálum virkjanaleyfis ber fyrirtækinu að fylgjast með breytingum á rennsli og vatnshæðum,“ segir hún. Bæjarráðið vill að Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, fundi með fulltrúum Fljótsdalshéraðs. Gerður Björk segir að forstjórinn muni bregðast vel við slíkri beiðni. Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK, segir að fyrir utan að ekki hafi náðst að loka samningum við landeigendur vegna Lagarfossvirkjunar séu skilmálar virkjanaleyfis þar uppfylltir. Bæjarráð Fljótsdalshéraðs vill einnig fund með fulltrúum Orkustofnunar til að fara yfir skilmála virkjanaleyfa Kárahnjúkavirkjunar og Lagarfossvirkjunar sem RARIK rekur. Skúli Thoroddsen, lögfræðingur hjá Orkustofnun, segir stofnunina hafa kallað eftir skýrslu Landsvirkjunar um vatnsstöðuna í Lagarfljóti til að bera saman við skilmála virkjanaleyfisins. „Það er ekki hægt að tjá sig um málið fyrr en þessi skýrsla liggur fyrir,“ segir Skúli. Landsvirkjun var beðin að svara spurningum sem Gunnar Jónsson setti fram í Fréttablaðinu á þriðjudag um vatnsmagn sem er umfram áætlun í Lagarfljóti. Það séu þrjátíu rúmmetrar á sekúndu. „Hvað framleiða þessir aukalítrar mikið af rafmagni og peningum fyrir Landsvirkjun?“ spurði Gunnar. „Það er erfitt að leggja mat á það og getum við því miður ekki gefið nein svör að svo stöddu,“ svarar Gerður Björk.
Mest lesið „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Innlent Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Innlent Fleiri fréttir Samfylkingin velur sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Sjá meira