Borgin vill sjálf draga burt bíla utan stæða Sunna Valgerðardóttir skrifar 13. mars 2013 06:00 Lögreglan hefur margoft sektað eigendur bíla sem hafa lagt þeim ólöglega. Fréttablaðið/pjetur „
Þessi heimild er lögreglunnar núna en hún hefur ekki tíma í þetta frekar en margt annað sem hún á að vera að sinna. Svo borgarstjóri hefur óskað eftir því að Reykjavíkurborg og Bílastæðasjóður megi draga burt bíla,“ segir Kolbrún Jónatansdóttir, framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs. Innanríkisráðuneytið hefur nú til skoðunar umsókn borgarinnar um að Bílastæðasjóður fái að draga burt bíla sem er lagt ólöglega. Umsögn hefur borist frá lögreglustjóranum í Reykjavík og er hann jákvæður gagnvart breytingunni. Gert er ráð fyrir því í nýjum umferðarlögum að sveitarfélög geti stundað aðgerðirnar í stað lögreglu, en Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið sem hefur sótt um. „Þegar þetta gengur í gegn megum við láta draga bíla sem eru að valda hættu,“ segir Kolbrún. Hún segir mikið kvartað yfir viðbragðsleysi lögreglunnar vegna bíla sem er lagt ólöglega í borginni. „En þetta er vald sem er vandmeðfarið og við þurfum að gæta að því þegar við fáum þessa heimild.“ Kolbrún býst ekki við því að bílar, sem lagt er í stæði fyrir fatlaða, verði dregnir í burtu einfaldlega vegna þess að fólk eigi það til að gleyma að setja viðeigandi kort í gluggann. „En þar sem þeim er lagt á hornum, gangstéttum og þar sem þeir hindra aðgang slökkviliðs- og sjúkrabíla verða þeir fluttir,“ segir hún. „Ég vona að þetta virki bara sem fælingarmáttur og við þurfum ekki að beita þessu mikið, þótt ég sé ekki bjartsýn á það.“ Sigurbergur Björnsson, skrifstofustjóri hjá innanríkisráðuneytinu, segir að nú sé beðið eftir umsögn frá Reykjavíkurborg varðandi undir hvaða kringumstæðum borgin myndi nýta þessa heimild. Að því loknu tekur ráðherra afstöðu til þess.
Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Erlent Fleiri fréttir „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Sjá meira