Gera ráð fyrir 80 milljóna leigu Svavar Hávarðsson skrifar 12. mars 2013 06:00 Leigusamningur ríkis og borgar er svo gott sem tilbúinn. Fréttablaðið/Stefán
Samningur Reykjavíkurborgar og ríkisins um leigu á Perlunni liggur fyrir og bíður samþykktar borgarráðs. Með samningnum er sýningarhúsnæði fyrir Náttúruminjasafn Íslands tryggt til næstu fimmtán ára. Í samningnum er miðað við að húsnæðið verði tilbúið að einu ári liðnu; eða 1. mars 2014. Leigan er 80 milljónir króna á ári til 2028. Eins og kunnugt er hafa á síðustu mánuðum farið fram samningaviðræður á milli Reykjavíkurborgar og mennta- og menningarmálaráðuneytisins, auk fjármálaráðuneytisins, um leigu ríkisins á Perlunni sem lausn við húsnæðisvanda Náttúruminjasafnsins. Viðræðurnar byggja á samþykkt borgarstjórnar frá 18. desember 2012 um kaup borgarinnar á Perlunni af Orkuveitu Reykjavíkur. Leigan er forsenda kaupanna á húsnæðinu. Stefnt er að því að leggja leigusamninginn fram til samþykktar á næsta fundi borgarráðs; jafnframt er stefnt að því að leggja fram kaupsamning um Perluna til kynningar, segir í drögum leigusamnings. Í kjölfar undirritunar samnings er miðað við að ljúka viðræðum við OR um kaup borgarinnar á Perlunni og leigu á einum vatnstanki, í samræmi við áðurnefnda samþykkt borgarstjórnar. Kaupverð Perlunnar er 950 milljónir króna.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira