Fjölbreytni og sátt í stað sóunar og vesens Kolbeinn Óttarsson Proppe skrifar 9. mars 2013 06:00 formennirnir Heiða Kristín Helgadóttir, sem er formaður flokksins ásamt Guðmundi Steingrímssyni, segir hegðun annarra stjórnmálaflokka í kosningabaráttu ráða miklu um það með hverjum flokkurinn vilji starfa.fréttablaðið/valli
Björt framtíð vill auka fjölbreytni í samfélaginu og breyta umræðunni um stjórnmál. Hegðun stjórnmálaflokka í kosningabaráttunni mun hafa áhrif á með hverjum flokkurinn vill starfa. Setur á oddinn að klára aðildarviðræður. Björt framtíð kynna í dag kosningaáherslur sínar. Þar kennir margra grasa en segja má að mesta áherslan sé lögð á að auka fjölbreytni í samfélaginu. Þar er vísað til skapandi greina og græns iðnaðar en einnig fjölbreytilegri rekstrarforma í velferðarkerfinu og ólíkrar skólastarfsemi. Heiða Kristín Helgadóttir, annar formanna Bjartrar framtíðar, segir að flokkurinn sé ekki tilbúinn að taka þátt í pólitískum hráskinnaleik, heldur vilji flokkurinn leysa alvarleg vandamál án fyrirframgefinna kredda. Hún segir að mikilvægt sé að taka á sóun. „Það er allt of mikil sóun í þessu litla samfélagi okkar, hvort sem það er í raforkukerfinu, peningum eða hæfileikum. Við þurfum að taka alvarlega ábendingar, eins og úr McKinsey-skýrslunni, að Íslendingar vinni allt of mikið og fái of lítið borgað fyrir það.“ Heiða segir að auka þurfi fjölbreytileika í atvinnugreinum og byggja betur undir þær. „Það þarf ekki að þýða ríkisstyrki. Það má auðvelda, eins og þegar kemur að því að svara erindum til hins opinbera, og minnka þetta vesen og rugl. Það er stór hluti af þessu líka.“ Heiða segir að flokkurinn hafi stutt fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar og lagt þar áherslu á að fjármunir færu í skapandi greinar og rannsóknarsjóði. Það sé mikilvægt. Hún segir að hegðun annarra flokka í kosningabaráttunni muni ráða því með hverjum Björt framtíð vilji helst starfa. Fólk verði að tala saman af lágmarksvirðingu. „Auðvitað erum við með ákveðin mál sem við viljum sjá klárast. Við setjum það töluvert á oddinn að klára aðildarviðræðurnar við ESB og fá úrlausn í þeim málum. Það er fyrir neðan allar hellur að ætla að halda þessu debatti um Evrópusambandið áfram næstu þrjátíu ár í viðbót. Eins viljum við búa í frjálsu samfélagi, sem þýðir að við þurfum að hleypa öðrum hingað inn og fá leiðbeiningar og hjálp frá öðrum. Það er í alvöru þannig að næstu fjögur ár geta orðið ansi erfið og það skiptir máli með hverjum maður er að fara að vinna.“
Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Sjá meira