Skattaívilnanir og milljarða framlög Kolbeinn Óttarsson Proppe skrifar 7. mars 2013 06:00 Á meðal þeirra framkvæmda sem ríkið mun greiða fyrir er vegtenging við iðnaðarsvæðið, þar með talið jarðgöng.fréttablaðið/völundur
Atvinnuvegaráðherra fær heimild til að semja um framkvæmdir í tengslum við uppbyggingu á Bakka fyrir 3,4 milljarða króna. Ríkið veitir ívilnanir vegna verkefnisins umfram þær sem lög kveða á um. Umtalsverður skattaafsláttur gefinn. Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, fær heimild til að skuldbinda ríkissjóð til útgjalda upp á 3,4 milljarða króna í tengslum við uppbyggingu stóriðju á Bakka, verði frumvarp um það að lögum. Að auki er farið fram á heimild til að veita ýmsar ívilnanir í tengslum við verkefnið, meiri en kveðið er á um í lögum um ívilnanir vegna fjárfestinga. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að tekjuskattur rekstrarfélags kísilvers á Bakka, PCC BakkiSilicon hf., verði fimmtán prósent, en ekki tuttugu prósent eins og lög gera ráð fyrir að megi semja um. Þá verði félagið algjörlega undanþegið tryggingargjaldi, en heimild er í lögum að semja um að félög greiði tuttugu prósent gjaldsins. Þá er gert ráð fyrir að félagið greiði engin stimpilgjöld af skjölum sem það gefur út og njóti 50 prósenta afsláttar af fasteignagjöldum. Heimild er til að semja um 30 prósenta afslátt af fasteignagjöldum. Loks er gert ráð fyrir því að þau skattafrávik gildi í fjórtán ár. „Áætlað er að þær ívilnanir sem ríkið veitir til verkefnisins vegna frávika frá sköttum og gjöldum, það er lægra tekjuskattshlutfall og undanþága frá almennu tryggingagjaldi og stimpilgjaldi, geti verið um 100–150 m.kr. á ári eða um 1–1,5 mia.kr. á 10 ára tímabili frá því að starfsemin hefst," segir í frumvarpinu. Það þýðir 1 til 1,5 milljarða króna tekjumissi fyrir ríkið á tímabilinu, sem bætist við þau útgjöld sem fyrr var um getið. Í umsögn fjármálaskrifstofu fjármála- og efnahagsráðuneytisins um frumvarpið er því velt upp hvort verið sé að setja fordæmi fyrir þá sem sækja um sams konar fjárfestingarverkefni. Ríkisstjórnin fól á föstudag fjármálaráðherra að ræða við aðila í Reykjanesbæ vegna framkvæmda við Helguvík.
Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Allt að sautján stiga hiti í dag Veður „Þurfum að huga að forvörnum“ Fréttir Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Fleiri fréttir Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Sjá meira