Lífið

Popp, hip hop og kántrí á Bangerz

Freyr Bjarnason skrifar
Miley Cyrus hefur heldur betur verið á milli tannanna á fólki síðustu vikur. Fyrst vakti hún hneykslan margra með svæsinni sviðsframkomu sinni á MTV-verðlaunahátíðinni, því næst birtist hún nakin í myndbandi sínu við lagið Wrecking Ball og loks átti hún í grimmum skoðanaskiptum við Sinéad O"Connor.

Nothing Compares 2 U-söngkonan sagði að óþarfi væri fyrir Cyrus að hegða sér eins og „vændiskona“ til að vekja á sér athygli. Cyrus gerði lítið úr ummælunum og benti á andlega vanheilsu O"Connor. Fyrir það var hún harðlega gagnrýnd.

En hvað um það. Núna er fjórða hljóðversplata Cyrus, Bangerz, komin út og sú fyrsta á vegum RCA Records. Þar starfar hún með kunnum upptökustjórum og lagahöfundum á borð við Mike Will, Pharrell, Future og will.i.am.

Cyrus, sem verður 21 árs í nóvember, ætlaði upphaflega að einbeita sér að kvikmyndaferlinum í stað þess að búa til Bangerz, en hún varð unglingastjarna í sjónvarpsþáttunum Hannah Montana. Í staðinn ákvað hún að leggja allt í sölurnar fyrir tónlistarferilinn og hún má eiga það að hún kann að vekja á sér athygli, hvað sem öðrum kann að finnast um lafandi tungu hennar og kynferðislega tilburði á opinberum vettvangi.

Sjálf lítur hún á Bangerz sem fyrstu „alvöru“ sólóplötuna sína, enda hefur hún núna sagt skilið við Hannah Montana-batteríið. Poppið er allsráðandi, þótt hip hop og sveitatónlist komi einnig við sögu. Tilurð sveitatónlistar á plötunni er síður en svo út úr kú því Cyrus er dóttir hins heimsfræga kántrítónlistarmanns Billy Ray Cyrus.

Textarnir á Bangerz snúast að mestu um ást og rómantík og eru líkast til undir áhrifum frá sambandsslitum hennar og unnustans fyrrverandi, leikarans Liams Hemsworth. Gestasöngvarar á plötunni eru Britney Spears, Big Sean, French Montana, Future, Ludacris og Nelly.

Smáskífulögin tvö hafa bæði notið hylli. We Can"t Stop komst í annað sæti bandaríska Billboard-listans og Wrecking Ball varð í framhaldinu fyrsta lag hennar til að ná toppsætinu. Samtals hafa níu lög með henni komst á topp tíu í Bandaríkjunum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.