Málmhaus forsýnd Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 10. október 2013 21:36 F.v. Pétur Ben, Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir, Ragnar Bragason, Árni Filippusson og Davíð Óskar Ólafsson. Mynd / Vilhelm Gunnarsson
Málmhaus var forsýnd í kvöld í Háskólabíó fyrir aðstandendur og boðsgesti en er frumsýnd um allt land á morgun. Ragnar Bragason, leikstjóri myndarinnar, segir það alltaf taugatrekkjandi að frumsýna fyrir sitt heimafólk. „Mér líður afskaplega vel. Þótt maður sé búinn að sýna eitthvað erlendis þá þykir manni mest vænt um sinn eigin markað,“ segir Ragnar en myndin var heimsfrumsýnd á Toronto-kvikmyndahátíðinni í september þar sem hún fékk mikið lof gagnrýnenda og áhorfenda og sýnd fyrir skömmu í Suður-Kóreu.Þorbjörg Helga í hlutverki sínu í Málmhaus.„Viðtökurnar úti voru framar öllum vonum. Maður er nú svolítið spilltur þar sem áhorfendurnir á þessum hátíðum eru virkilega áhugasamir og jákvæðir," segir Ragnar. Ragnar leikstýrir og skrifar einnig handrit Málmhauss og í aðalhlutverkum eru þau Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir í sínu fyrsta kvikmyndahlutverki, Ingvar E. Sigurðsson og Halldóra Geirharðsdóttir í hlutverkum foreldra hennar. Pétur Ben semur tónlistina í myndinni og Árni Filippusson og Davíð Óskar Ólafsson eru framleiðendur. Myndin hefst árið 1970 og hljómsveitin Black Sabbath er búin að gefa út sína fyrstu plötu. Hera býr ásamt foreldrum sínum í sveit þar sem hún og bróðir hennar hafa alist upp við leik og störf í tiltölulega áhyggjulausu umhverfi. Það verður þessari litlu fjölskyldu mikið áfall þegar bróðir Heru deyr og til að takast á við sorgina sökkvir Hera sér í þungarokkið sem bróðir hennar hafði svo miklar mætur á, byrjar að læra á gítar og dreymir um frægð og frama.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Tónlist Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Bíó og sjónvarp Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Lífið samstarf Fleiri fréttir Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Sjá meira