Jackman segir persónu sína eiga í erfiðleikum með að sætta sig við ódauðleika sinn og takast á við dauða ástvina sinna. „Hann áttar sig á því að ástvinir hans munu deyja en ekki hann, líf hans er fullt af sársauka,“ sagði Jackman. Þess má geta að hann naut liðsinnis leikarans og glímumannsins Dwayne Johnson við það að koma sér í form fyrir hlutverkið.
Walk the Line leikstjóri leikstýrir
Handrit myndarinnar er skrifað af Christopher McQuarrie, Scott Frank og Mark Bomback og byggt á teiknimyndasögunni Wolverine sem kom út í takmörkuðu upplagi árið 1982. James Mangold leikstýrir myndinni, en hann er best þekktur fyrir kvikmyndirnar Girl, Interrupted og Walk the Line. Hann hafði úr um 12 milljarða króna að moða til að vinna myndina. Tökur hófust þann 30. júlí í fyrra og fóru meðal annars fram í Bonna Point friðlandinu í Kurnell, Syndney, Japan og Kanada.
Kvikmyndin fær 67 prósent í einkunn á vefsíðunni Rottentomatoes og 44 af hundrað á Metacritic.com.