Segir ráðuneyti og embætti tala einum rómi 12. febrúar 2013 13:48 Ögmundur Jónasson rétt áður en hann fór á fundinn.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði í samtali við Vísi eftir sameiginlegan nefndarfund um FBI málið að hann, ríkissaksóknari og ríkislögreglustjóri töluðu einum rómi um veru FBI hér á landi. Ögmundur segir að upphaflega hafi verið gefin út réttarbeiðni í júní árið 2011 þegar íslensk yfirvöld voru upplýst um það af hálfu bandarísku alríkislögreglunnar, að tölvuárás væri yfirvofandi hér á landi. Sú réttarbeiðni hefði aftur á móti verið endurskoðuð þegar fulltrúar alríkislögreglunnar komu hingað til lands í lok ágúst, "þar sem heimsókn FBI rúmaðist ekki innan réttarbeiðninnar," bætir Ögmundur við. Ástæðan fyrir því að heimsókn FBI rúmaðist ekki innan beiðninnar var sú að tilgangur fulltrúanna var að ræða við ungan mann sem er íslenskur ríkisborgari og gaf sig fram í bandaríska sendiráðinu. FBI ræddi við hann í fimm daga eftir að réttarbeiðnin var afturkölluð en þá snérist rannsóknin um Wikileaks, enda var pilturinn eitt sinn sjálfboðaliði hjá samtökunum. "Og við skulum ekki gleyma því að þessi maður ræddi sjálfviljugur við FBI, en við erum að ræða um form samstarfs á milli íslenskra og erlendra löggæsluyfirvalda," segir Ögmundur. Spurður hvort afskipti ráðherrans af einstökum sakamálum séu eðlileg, eða hvort hann líti svo á að hann hafi haft afskipti af sakamáli sem slíku, svarar Ögmundur að svo sé ekki, enda tók ráðuneytið eingöngu afstöðu til réttarbeiðninnar, sem er hlutverk ráðuneytisins. Samantekt ráðuneytisins er að finna á vef þess hér. Nefndarfundinum er lokið.
Mest lesið Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Erlent Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Innlent Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Innlent Neitað um lausn gegn tryggingu Erlent Fleiri fréttir Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Mikill kraftur í íslensku atvinnulífi Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Þórisvatn fullt í fyrsta skipti í sex ár Íslenskar konur gáfu nýjan búning á fjallkonuna í Gimli Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Einn handtekinn vegna líkamsárasar Sjá meira