Erlend markaðssetning okkar er á heimsmælikvarða Ása Ottesen skrifar 20. september 2013 10:00 Inga Hlín Pálsdóttir forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu. Fréttblaðið/GVA „
Þessi viðurkenning sýnir okkur að erlend markaðssetning okkar er á heimsmælikvarða. Fyrir markaðssetningu á áfangastað erum við í sama flokki og Volkswagen, Audi og Hyundai, sem eyða milljörðum í markaðsherferðir,“ segir Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu, um verðlaunin sem markaðsherferðinni Inspired By Iceland voru veitt við hátíðlega athöfn í Brussel á miðvikudaginn. Herferðin hlaut hin virtu Euro Effie-verðlaun í flokknum afþreying og skemmtun. Verðlaunin voru veitt sérstaklega fyrir heimboð Íslendinga sem voru hluti af herferðinni árið 2011-2012. Er þetta í annað skipti sem Inspired By Iceland eru veitt verðlaunin. Árið 2011 hlaut herferðin aðalverðlaun fyrir notkun samfélagsmiðla og einnig Grand Prix-verðlaun fyrir herferð ársins. Euro Effie eru virtustu og eftirsóttustu fagverðlaunin í auglýsingageiranum. Það eru Samtök evrópskra auglýsingastofa (EACA) sem standa að veitingu verðlaunanna, sem voru fyrst veitt árið 1954. „Þetta eru ein flottustu og virtustu auglýsingaverðlaun sem hægt er að fá og mikil viðurkenning fyrir alla aðila að herferðinni. Sá hluti herferðarinnar sem verðlaunin eru veitt fyrir gekk út á það að við biðluðum til Íslendinga að bjóða erlendum ferðamönnum heim. Ferðamenn sóttu um heimboðið á samfélagsmiðlum okkar og það voru um 200-300 Íslendingar sem tóku þátt í þessum með okkur. Sem dæmi má nefna að kona frá Bjarteyjarsandi bauð ferðamönnum að tína kræklinga með sér. Forseti Íslands bauð í pönnukökur en skemmtilegt er að segja frá því að mæðgur komu til dæmis sérstaklega frá Seattle í Bandaríkjunum til þess að fá sér kaffi með forsetanum. Jón Gnarr bauð ferðamönnum í sushi upp á Höfða og svona mætti lengi telja,“ segir Inga Hlín. Spurð út í næstu verkefni Inspired By Iceland segir Inga að alltaf sé unnið með skemmtilegt þema á hverju ári til þess að fá athygli erlendis. „Núna vorum að byrja vetrarherferðina fyrir þetta ár þar sem við biðjum Íslendinga að segja ferðamönnum frá leyndarmálum. Það þarf ekki að vera um náttúru eða staði, það má vera um hlut, safn, uppskrift, sögu eða annað skemmtilegt sem fólk langar til þess að deila og telur að ferðamaðurinn eigi að fá að upplifa um allt land. Tilgangur herferðarinnar er að vekja athygli á Íslandi yfir vetrartímann og fjölga ferðamönnum á þeim tíma,“ segir Inga Hlín að lokum.
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Útför Björgvins opin almenningi Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Tónlist Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira