Lífið

Fólk dansar eins og það hefur skap og getu til

Sara McMahon skrifar
Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Berglaug Guðmundsdóttir, Hólmfríður Gunnlaugsdóttir og Halla Kjartansdóttir standa fyrir styrktarballi í minningu tveggja vina sinna er létust úr krabbameini.
Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Berglaug Guðmundsdóttir, Hólmfríður Gunnlaugsdóttir og Halla Kjartansdóttir standa fyrir styrktarballi í minningu tveggja vina sinna er létust úr krabbameini. Fréttablaðið/vilhelm
„Þetta er í raun „ballið hennar Beggu“ en það var hún sem átti upphaflegu hugmyndina að því að við vinkonurnar blésum til dansleiks og byðum öllu skemmtilega fólkinu sem við þekktum. Þegar hugmyndin kom fyrst upp fyrir um tíu árum eða svo þá töldum við hana afar djarfa og skutum henni stöðugt á frest enda töldum við að sjálfsögðu nógan tíma til stefnu, en ótímabært fráfall þeirra Steingríms og Beggu með aðeins rúmlega árs millibili varð okkur áminning um að það væri ekki eftir neinu að bíða með ballið,“ segir Halla Kjartansdóttir framhaldsskólakennari.

Hún og fjórar gamlar menntaskólavinkonur hennar standa að dansleik í Iðnó í kvöld til að heiðra minningu tveggja góðra vina sem létust úr krabbameini langt fyrir aldur fram með rúmlega árs millibili. Þau hétu Bergþóra Jónsdóttir og Steingrímur Eyfjörð Guðmundsson.

„Við pöntuðum Iðnó fljótlega eftir áramót og þegar það var búið varð ekki aftur snúið,“ útskýrir Halla. Hljómsveitin Magga Stína og Hringir mun spila fyrir dansi og mun allur ágóði renna til Krabbameinsfélagsins. Að sögn Höllu býst hópurinn við fullu húsi, en salurinn rúmar um tvö til þrjú hundruð manns.

„Þetta er opið öllum, við viljum gjarnan fá ungu kynslóðina líka, þetta er ekki bara ætlað okkur gamlingjunum. Þó þetta kallist dansleikur þá ætlum við ekki að dansa gömlu dansana, fólk dansar bara eins og það hefur skap og getu til.“

Húsið opnar klukkan 21 og aðgangseyrir er 3.000 krónur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.