"Allar konur eiga að mála sig" Marín Manda skrifar 6. september 2013 14:15
Kristín Stefánsdóttir förðunarmeistari hefur skrifað förðunarbókina Förðun-skref fyrir skref og Lífið fékk að skyggnast á bak við tjöldin. „Ég er búin að ganga með þetta verkefni í maganum í mörg ár. Mér finnst mikilvægt að konur læri að farða sig á einfaldan og fljótlegan máta. Þarna er ég að kenna förðun og umhirðu húðarinnar á einfaldan og skilmerkilegan hátt og hvernig við förum í þessa grunnförðun sem ég er alltaf að predika að allar konur eigi að sinna,“ segir Kristín Stefánsdóttir, snyrti-og förðunarmeistari og rithöfundur bókarinnar Förðun – skref fyrir skref.Bókin kemur í verslanir í byrjun október en að sögn Kristínar er öll förðunarflóran tekin fyrir í þessari íslensku bók en í henni er kennd fimm mínútna förðunin, sem ætti að gagnast flestum konum, kvöldförðun, brúðarförðun, „smokey“ og fleira mætti telja. Kristín hefur starfað sem förðunarmeistari í yfir þrátíu ár og stofnaði meðal annars förðunarskólann No Name árið 1997 auk þess sem hún hefur haldið fjölda námskeiða í förðun.„Silla Páls tók myndirnar en þetta eru yfir 200 myndir og það liggur gríðarleg vinna í bókinni. Ég var með æðislegt samstarfsfólk í þessu; hárgreiðslufólk og stílista. Mörg módelin hafa aldrei setið fyrir áður og útkoman er mjög fjölbreytt og skemmtileg.” Þegar hún er að lokum spurð út í framtíðaráform sín segir hún mörg spennandi verkefni fram undan. „Ég er að opna nýtt förðunarstúdíó þar sem boðið verður upp á stutt og hnitmiðuð námskeið í grunnatriðum í förðun. Einnig verður boðið upp á námskeið fyrir fagfólk þar sem erlendir förðunarmeistarar verða fengnir til að kenna það sem er nýjast og ferskast hverju sinni.“ segir hún að lokum.
Mest lesið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Fleiri fréttir Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Sjá meira