Innlent

Býður 100 þúsund í fundarlaun fyrir tíkina Sally

Freyr Bjarnason skrifar
Hulda ásamt tíkinni sinni Carmen sem lítur eins út og Sally. Mynd/Vilhelm
Hulda ásamt tíkinni sinni Carmen sem lítur eins út og Sally. Mynd/Vilhelm
„Mér líður alveg ömurlega. Þetta er bara rosalega erfitt en maður heldur í vonina um að finna hana," segir Hulda Hrund Höskuldsdóttir.

Hundurinn hennar, hin níu mánaða Sally af tegundinni pug, hvarf úr Elliðaárdalnum fyrir tveimur vikum og hefur mikil leit staðið yfir síðan.

Hulda Hrund bjó til Facebook-síðuna „Leitin að Sally" þar sem hún hvetur fólk til að aðstoða við leitina.

„Í fyrradag [á þriðjudag] sást hundur sem var mjög líkur henni í Víðidal. Þetta var smáhundur með sirka 26 sentimetra á herðakamb, ljós með svarta grímu sem var rosalega hræddur. Þetta hljómaði svakalega líkt og Sally.

„Ég hef verið að dreifa miðum með auglýsingu á dýraspítala og í dýrabúðir. Ég held enn í vonina. Ég þekki eina konu sem er að rækta pug í Noregi. Hann týndist í heila viku og þar var tíu stiga frost. En hann lifði af,".

Sally fældist í burtu þegar stór border collie-hundur gelti að henni er hún var á gangi með Huldu í Elliðaárdalnum.

„Ég leit af henni og hún var allt í einu horfin." Hulda Hrund býr ein og á þrjá aðra hunda af sömu tegund og Sally.

Hún býður eitt hundruð þúsund krónur í fundarlaun fyrir þann sem getur fundið tíkina sína. Sá hinn sami skal hringja í 694-8225 eða senda skilaboð á Facebook. Erfitt er að nálgast Sally og því er best að lokka hana til sín með mat eða króna hana af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×