Fagna nýju Barnahúsi 5. apríl 2013 17:25
UNICEF á Íslandi fagnar nýútkominni skýrslu samráðshóps stjórnvalda um aðgerðir gegn kynferðislegu ofbeldi. Í skýrslunni sem kynnt var í dag er lagt til að tæplega 300 milljónum verði varið til aðgerða gegn barnamisnotkun. UNICEF hefur sent frá sér yfirlýsingu í tilefni nýútkominnar skýrslu. Þar er sérstaklega fagnað tillögum um kaup á nýju Barnahúsi. Er það trú samtakanna að aðgerðir þær sem kynntar voru í dag, og fjallað var um hér á Vísi, verði samfélaginu öllu til heilla. Yfirlýsingin UNICEF á Íslandi fagnar þeim skýra vilja til úrbóta sem birtist í skýrslu samráðshóps stjórnvalda um aðgerðir gegn kynferðislegu ofbeldi. Skýrslan var kynnt fyrir stundu. Tillögurnar í skýrslunni eru flestar kostnaðargreindar og hugsaðar til lengri tíma, sem er afar mikilvægt. Í tillögum samráðshópsins er lögð áhersla á forvarnir, svo sem með eflingu og útvíkkun vitundarvakningar um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum, gerð fræðsluefnis og stofnun rannsóknarsjóðs. Það er brýnt. UNICEF á Íslandi fagnar að auki sérstaklega tillögum um kaup á nýju húsi fyrir Barnahús og fjölgun starfsmanna hússins, enda löngu ljóst að starfsemin var sprungin. Einnig er meðal annars í tillögum samráðshópsins að finna mikilvæga tillögu um að Barnahúsi verði gert kleift að taka á móti börnum sem orðið hafa fyrir annars konar ofbeldi en kynferðislegu ofbeldi. Ein af forgangstillögum samráðshópsins er að starfsemi vitundarvakningar um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum verði útvíkkuð og „fest í sessi til frambúðar í þeim anda sem UNICEF og fleiri aðilar hafa lagt til með tillögum sínum um svokallað Ofbeldisvarnarráð." Þetta er UNICEF á Íslandi fagnaðarefni, sem og að sérstakur verkefnisstjóri verði ráðinn þegar í stað í fullt starf til að gera tillögur að framtíðarfyrirkomulagi forvarna og fræðslu. Ánægjulegt er að í skýrslu samráðshópsins er tekið tillit til ábendinga sérfræðihóps barna sem aðstoðaði UNICEF við gerð nýútkominnar skýrslu sinnar Réttindi barna á Íslandi: Ofbeldi og forvarnir. Eftir útkomu hennar hitti sérfræðihópurinn bæði ráðherra og samráðshópinn. Meðal tillaga ungmennanna var að gert yrði ráð fyrir stuðningi gagnvart aðstandendum brotaþola – nokkuð sem þeim þótti skorta. Það er UNICEF á Íslandi sérstakt gleðiefni að tillögu um slíkt er að finna í skýrslu samráðshópsins. Raunar er ánægjuefni að fjölmargar þeirra tillaga sem kynntar voru í dag eru í anda áðurnefndrar skýrslu UNICEF. Það er trú UNICEF á Íslandi að þær aðgerðir sem kynntar voru í dag verði samfélaginu öllu til heilla.
Tengdar fréttir Tæplega 300 milljónir fara í aðgerðir gegn barnamisnotkun Ríkisstjórnin hefur ákveðið að verja nú þegar 79 milljónum króna til að fjármagna forgangsaðgerðir til að bregðast við neyðarástandi í kynferðisbrotum gegn börnum. 5. apríl 2013 14:55 Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira
Tæplega 300 milljónir fara í aðgerðir gegn barnamisnotkun Ríkisstjórnin hefur ákveðið að verja nú þegar 79 milljónum króna til að fjármagna forgangsaðgerðir til að bregðast við neyðarástandi í kynferðisbrotum gegn börnum. 5. apríl 2013 14:55