"Ég get hermt eftir Dýra úr The Muppet Show“ Marín Manda skrifar 27. september 2013 15:45 Unnur Pálmarsdóttir
Unnur Pálmarsdóttir var spurð spjörunum úr þessa vikuna en hún segir manninn sinn hafa dulda hæfileika og hafi komið henni skemmtilega á óvart. Nafn? Unnur PálmarsdóttirAldur? 37 áraStarf? Stöðvarstjóri World Class SeltjarnarnesiHvern faðmaðir þú síðast? Eiginmanninn minn, Gylfa Má, í morgun.En kysstir? Ég kyssti eiginmanninn minn ljúfum kossi.Hver kom þér síðast á óvart og hvernig? Maðurinn minn tók sig til og samdi lag á munnhörpu og léttan dans við lagið. Svo spilaði hann það fyrir mig og fjölskylduna sem var einstaklega fyndið, skemmtilegt og óvænt. Það eru duldir hæfileikar í fjölskyldunni.Hvaða galla í eigin fari ertu búin að umbera allt of lengi? Flokka í geymslunni minni.Ertu hörundsár? Já, ég get verið það.Dansarðu þegar enginn sér til? Já, ég dansa á hverjum degi og nýt þess í botn! Hvenær gerðirðu þig síðast að fífli og hvernig? Ég leik við Max, labradorinn okkar, daglega og geri mig oft að fífli með skemmtilegum látum með honum.Hringirðu stundum í vælubílinn? Ég þarf þess ekki – lífið er svo skemmtilegt.Tekurðu strætó? Nei, hef ekki gert það undanfarið en gerði það oft þegar við bjuggum á Selfossi. Þá var snilld að nýta sér þjónustuna og taka leiðina Selfoss/Reykjavík.Hvað eyðirðu miklum tíma á Facebook á dag? Ég eyði töluverðum tíma.Ferðu hjá þér þegar þú hittir fræga eða heilsarðu þeim? Ég fer nú ekki hjá mér en heilsa þeim. Skemmtilegt var þegar Chris Cornell, söngvarinn frægi, var með tónleika í Laugardalshöllinni en eftir tónleikana sáum við kappann, heilsuðum honum og hann talaði lengi við okkur um land og þjóð.Lumarðu á einhverju sem fáir vinir þínir vita um þig? Já, ég get hermt eftir Dýra eða „Animal“ úr „The Muppet Show“.Hvað ætlarðu alls ekki að gera um helgina? Ég ætla alls ekki að „detta í það“.
Mest lesið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Tónlist Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Lífið Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira