Sorpbrennslu hætt á Húsavík Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. mars 2013 16:11 Sorpbrennslu var hætt á Kirkjubæjarklaustri í lok síðasta árs. „
Okkur þykir þetta auðvitað afsaplega leitt. En það er ódýrara að grafa holu og setja ofan í en að gera það með þessum hætti," segir Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri í Norðurþingi um endalok sorpbrennslu hjá Sorpsamlagi Þingeyinga á Húsavík. Sorpbrennslu fyrir norðan verður hætt þann 27. mars. Reksturinn hefur verið erfiður en dýrar en nauðsynlegar endurbætur á tækjabúnaði verða ekki umflúnar, segir í tilkynningu frá Sorpsamlaginu. Því miður hafi hvorki tekist að tryggja fjármagn til endurbóta né rekstrargrundvöll brennslunar. „Þess utan hafa menn fengið heimild til þess að urða úrgang og annað sem ekki var áður. Það hefur auðvitað áhrif á tekjur af þessari brennslu," segir Bergur Elías í samtali við Vísi. Hann segir niðurstöðuna leiðinlega en gripið verði til þeirra aðgerða sem þurfi. Eftir að sorpbrennslunni verður lokað hinn 27. mars næstkomandi verður sorpi safnað ýmist í móttökustöð á Húsavík eða flokkunarstöð Gámaþjónustu Norðurlands á Akureyri, sett í flutningsgáma og ekið til urðunar í Stekkjarvík, urðunarstað Norðurár bs. nálægt Blönduósi. Ljóst sé að flutningur sorps og endurvinnsluefna eftir þjóðvegum landins muni aukast töluvert með tilheyrandi mengun og sliti á vegum. Þegar sorpbrennslu lýkur verður ekki mögulegt að taka á móti tilteknum úrgangsflokkum til eyðingar, svo sem áhættuvef frá sláturhúsum, sýktum dýrahræjum eða sóttmenguðum úrgangi frá sjúkrahúsum og heilbrigðisstofnunum. Spilliefnum verður hins vegar safnað áfram í móttökustöð á Húsavík og gámaplönum til sveita og komið í viðeigandi farveg, meðal annars í brennslu á Suðurnesjum eða flutt utan til frekari meðhöndlunar eða eyðingar. Stjórn og eigendur Sorpsamlags Þingeyinga undrast það tómlæti sem yfirvöld hafa sýnt rekstrarumhverfi sorpbrennslna sem starfað hafa samkvæmt gildandi lögum og reglugerðum, því viðurkennt er að sorpbrennsla er nauðsynlegur þáttur í úrgangsstjórnun, ekki síst við neyðaraðstæður.
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Vill að sjálfkeyrandi bílar verði leyfðir hérlendis Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins Sjá meira