Draumamaðurinn er 23 ára tölvunarfræðingur Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 12. október 2013 21:03 Friðrik Már er á ferðalagi um Bandaríkin, hann er í spennufalli vegna vefsíðunnar sem vinur hans opnaði honum til heiðurs.
Friðrik Már Jónsson 23 ára gamall tölvunarfræðingur öðlaðist skyndilega frægð í dag á internetinu. Friðrik á afmæli í dag og vinur hans Finnur Kolbeinsson opnaði af því tilefni heimasíðuna Draumamaðurinn Friðriki til heiðurs. Á síðunni segir meðal annars: „Hæ! Ég heiti Frikki og ég er draumamaðurinn þinn! Á þessari síðu er hægt að sjá upp á hvað ég hef að bjóða í tilvonandi ástarsambandi okkar. Ég og þú, látum þetta gerast!“ Fyrir neðan er svo hægt að ýta á hnapp til að skrá sig í ástarsamband með Friðriki. Á síðunni segir ýmislegt fleira. Meðal annars að rómantíkin sé uppáhalds tíkin hans Friðriks, að hann sé handlaginn, með góðan skeggvöxt og láti fólk hlæja. „Mér finnst þetta mjög fyndið,“ segir Friðrik. En eftir að síðan fór í loftið er allt búið að vera rauðglóandi hjá honum. Hann segir að upphafið af þessu megi rekja til afmælisdags Friðriks í fyrra. Þá keypti Finnur auglýsingu fyrir hann á Facebook, auglýsingin birtist á Facebook síðum þúsunda einhleypra íslenskra kvenna og þar kom fram að Friðrik væri góður kostur. „Þannig að þegar hann átti afmæli, þá gerði ég treiler fyrir myndina Elskandinn og kynnti Finn til sögunnar sem mann í leit að ástinni. Það var mitt svar.“ „En núna er þetta komið svo miklu lengra, Finnur keypti lén og allt og gerði alvöru heimasíðu og er búinn að dreifa þessu út um allt.“Finnur Kolbeinsson, opnaði síðuna Draumamaðurinn í dag, til heiður vini sínum. Síðan hefur vakið mikla athygli.Friðrik lýsti því að hann hafi í langan tíma grunað að Finnur myndi gera eitthvað í tilefni afmælisins, en vissi ekki hvað. Á Facebook síðu Finns hefur hann verið að telja niður í daginn. „Ég er í alvöru búinn að vera í panikki yfir þessu og það er spennufall í gangi núna. Mér finnst þetta samt mjög fyndið.“ Friðrik er á ferðalagi um Bandaríkin núna þar sem hann er að líta í kringum sig og skoða nokkrar borgir. Hann er nýútskrifaður úr tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og fannst góður tími til þess að fara og skoða sig um núna. „Ég er einhleypur og hann líka, ég veit ekki hvað gerist þegar annar hvor okkar fer á fast, þá vitum við ekkert hvað við getum gert til að stríða hinum á afmælisdaginn.“
Mest lesið Ísland fékk stig frá þessum löndum Lífið Ein óvæntustu úrslit Eurovision-sögunnar Lífið Þjóðin tjáir sig: Skipbrot VÆB, söguleg núll stig og meðalgreind heimsálfa Lífið 50+: „Það þykir ekki töff að segjast vera einmana“ Áskorun Felix kveður Eurovision Lífið Voru í sjötta sæti í undankeppninni Lífið Vaktin: Stórsigur Austurríkis og VÆB fengu 33 stig Lífið Krakkatían: Eurovision, jarðskjálftar og dvergar Lífið Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Lífið Klúróvision í kvöld: „Þetta fer svo fyrir brjóstið á okkur að við förum úr fötunum“ Lífið Fleiri fréttir Felix kveður Eurovision Ein óvæntustu úrslit Eurovision-sögunnar Krakkatían: Eurovision, jarðskjálftar og dvergar Voru í sjötta sæti í undankeppninni Þjóðin tjáir sig: Skipbrot VÆB, söguleg núll stig og meðalgreind heimsálfa Ísland fékk stig frá þessum löndum Austurríki sigurvegari Eurovision 2025 Íslendingar á samfélagsmiðlum: „Við hljótum að vinna þetta?“ Klúróvision í kvöld: „Þetta fer svo fyrir brjóstið á okkur að við förum úr fötunum“ Vaktin: Stórsigur Austurríkis og VÆB fengu 33 stig Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Krókódíllinn úr Happy Gilmore allur Bjarni Ara í íslensku dómnefndinni Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Sterkar vísbendingar um að Céline Dion mæti í kvöld Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Sjá meira