Gotti fór bara á djammið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. mars 2013 12:57 Gotti uppi á ostinum á góðviðrisdegi í sundlauginni á Selfossi. Mynd/Heimasíða Árborgar
Ostastrákurinn Gotti, sem fjarlægður var af stalli sínum í Sundhöll Selfoss síðastliðinn mánudag, fannst í heilu lagi í íbúðarhverfi á Selfossi í gærkvöldi.Fréttavefur Sunnlendinga greinir frá þessu en Gotti virðist hafa skellt sér út á lífið um helgina enda uppáklæddur í svarta skyrtu, með sólgleraugu og glæsilegan stráhatt. Þá var hann með einn kaldan í hendi sinni. Mynd af Gotta í nýju fötunum má sjá á Sunnlenska.is. Í bréfi, sem fest var við ostastrákinn, biðst Gotti afsökunar á því að hafa strokið að heiman. „Ég var kominn með hundleið á því að standa þarna eins og illa gerður hlutur í fleiri ár þannig ég ákvað að fara aðeins að lyfta mér upp, en þið vitið það að þegar ég fer á djammið þá kem ég alltaf heim aftur," segir meðal annars í bréfinu. Þá spyr Gotti í lok bréfsins hvort ekki sé möguleiki á að fá kvenmann til að standa vaktina í sundlauginni við hlið sér. Einmanalegt sé á toppi ostsins.Garðálfurinn vill vafalaust komast aftur í garðinn sinn.Mynd/Árborg.isMyndir náðust af tveimur einstaklingum fjarlægja Gotta á mánudagskvöldið að því er fram kemur á heimasíðu sveitarfélagsins Árborgar. Enn liggur ekki fyrir hverjir voru þar að verki en lítill garðálfur var settur í stað Gotta á topp ostsins. Eigandi garðálfsins getur nálgast hann á lögreglustöðinni á Selfossi.
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins Sjá meira