"Við eigum ekki að slá af kröfunum“ Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 6. nóvember 2013 07:00 Jóhanna Einarsdóttir, forseti menntavísindasviðs HÍ, segir rökin fyrir aukinni menntun leikskólakennara vera metnaður fyrir skólastarfi á Íslandi. Mynd / Daníel Rúnarsson „
Þegar Landspítalinn á í vandræðum vegna skorts á læknum dettur engum í hug að stytta læknanámið en þegar það verður kennaraskortur þá er fyrsta svarið að stytta námið,“ segir Jóhanna Einarsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra hefur sagt að til að mæta skorti á faglærðum leikskólakennurum á Íslandi þurfi að endurskoða námið og bjóða styttri námsleiðir. Aðsóknin í leikskólakennaranám hrundi eftir að það var lengt úr þremur árum í fimm ár. Jóhanna segir vel menntaða leikskólakennara vera nauðsynlega í flóknara samfélagi. „Börn alast upp við aukið fjölmenningarsamfélag, tækni og tækifæri. Kennarar standa frammi fyrir miklum áskorunum, eru með fjölbreytta nemendahópa og við gerum kröfur um að öllum börnum sé sinnt og mætt.“ Hún bætir við að leikskólastarf hafi breyst mikið á síðustu tveimur áratugum þar sem almennt séu öll börn frá tveggja ára aldri í leikskólum stóran hluta dagsins. Börnunum fjölgar og því segir Jóhanna það grafalvarlegt mál að leikskólakennurum fækki. „Það er forgangsmál hjá okkur að fjölga nemendum í kennaranámi. Við erum að vinna að ýmsum hugmyndum til að gera námið meira spennandi og aðgengilegra fyrir fólk en við eigum ekki að slá af kröfunum. Við viljum vera í fararbroddi í menntun og bera okkur saman við þá sem standa sig best í menntamálum á heimsvísu,“ segir Jóhanna. Hvað finnst starfandi leikskólakennurum um málið? „Mér finnst að leikskólakennarar eigi að fá kennsluréttindi eftir þriggja ára nám,“ segir Elín Anna Lárusdóttir, leikskólakennari á Laugasól. „Svo ætti kerfið að hvetja fólk til að fara í mastersnám og sérhæfa sig. En mér finnst mikilvægt að fólk fái starfsreynslu áður en það velur sérhæfingu.“ „Það þarf að kynna starfið fyrir fólki,“ segir Emilía Rafnsdóttir, leikskólakennari á Öskju. „Ég valdi mér námið þrátt fyrir léleg laun. Fólk þarf að kynnast því hvað þetta er yndislegur starfsstaður svo það velji sér námið á réttum forsendum. En námið á að vera fimm ár og launin þarf að hækka.“ „Námið gefur djúpa og góða þekkingu og er mjög þarft,“ segir Júlíana Tyrfingsdóttir, leikskólastjóri á Álfaborg. „Við erum fagfólk í okkar starfi og það á ekki að gefa afslátt af því. Hlutverk okkar sem erum útskrifuð er að tala upp kennarastéttina, en ekki niður.“ „Ég prófaði að vinna á leikskóla, mér fannst það skemmtilegt og krefjandi starf og vildi ekki vinna á leikskólanum án réttinda,“ segir Hanna Rós Jónasdóttir leikskólakennari. „Ég velti fyrir mér laununum en maður verður að vera bjartsýnn og skella sér í næstu kjarabaráttu.“
Mest lesið „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Innlent Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum Innlent Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Innlent „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Innlent Fleiri fréttir Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Sjá meira