Hvergi meiri netnotkun en hér Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. mars 2013 09:18 Mynd/ Getty.
Ísland er með hæsta hlutfall netttengdra heimila í Evrópu og jafnframt hæsta hlutfall netnotenda. Í þrjátíu og tveimur Evrópulöndum eru árlega framkvæmdar rannsóknir á upplýsingatækninotkun einstaklinga og fyrirtækja. Niðurstöður fyrir Ísland voru birtar á vef Hagstofu Íslands í september, en í desember gaf Hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat, út helstu niðurstöður fyrir öll þau lönd sem tóku þátt í rannsókninni. Fyrirtækjarannsóknin nær yfir þau fyrirtæki sem eru að lágmarki með 10 starfsmenn, en fjármálafyrirtæki eru undanskilin. Eru 27% íslenskra fyrirtækja með starfandi sérfræðing í upplýsingatækni, en er það hlutfall 21% í löndum Evrópusambandsins. 64% íslenskra fyrirtækja útvega starfsfólki tæki til að tengjast netinu þráðlaust. Var það hlutfall 48% í löndum Evrópusambandsins, en 68% í Noregi.Á vef Hagstofu Íslands kemur fram að rannsókn einstaklinga leiddi í ljós að 47% netnotenda á aldrinum 16-74 ára tengjast netinu með eftirfarandi þráðlausum tækjum: fartölvu, lófatölvu eða spjaldtölvu. Það hlutfall er 33% í Evrópusambandinu öllu. Algengast var að einstaklingar tengdust með slíkum tækjum í Noregi, 69%, en næstalgengast í Svíðjóð og Bretlandi, 51%. Hvað nethegðun einstaklinga varðaði höfðu 67% netnotenda á Íslandi birt skilaboð á samfélagsmiðlum, en var það hlutfall 52% í löndum Evrópusambandsins. 90% íslenskra netnotenda nota vefbanka og er það hlutfall eingöngu hærra í Noregi og í Finnlandi. Þar er það 91%.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtisöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Erlent Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Innlent „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtisöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sjá meira