Lífið

„Rosalega falleg stelpa sem myndast mjög vel“

Selma Björk í myndatökunni fyrir skólaverkefni Birtu.
Selma Björk í myndatökunni fyrir skólaverkefni Birtu.
„Ég sá umfjöllunina um Selmu Björk og myndir af henni. Hún er rosalega falleg stelpa  og ég hafði því samband við hana og spurði hvort ég mætti ekki taka af henni myndir,“ segir ljósmyndaneminn Birta Rán Björgvinsdóttir sem fékk Selmu Björk Hermannsdóttur til að sitja fyrir á myndum hjá sér.

Selma Björk, sextán ára, vakti mikla athygli þegar hún steig fram fyrir skömmu og sagði frá því skelfilega einelti sem hún hefur orðið fyrir. Selma Björk fæddist með skarð í vör og hefur verið strítt á því alla ævi.

Birta Rún segir að Selma Björk hafi myndast ótrúlega vel.
„Það er ótrúlegt að ég sat hérna á föstudaginn eftir skóla og mér fannst ég ein og útskúfuð. Ég var svo einmana og svo þreytt. Svo skrifaði ég þetta og kvöldið eftir sé ég að yfir níu þúsund manns hafa líkað við greinina. Það er ótrúlegt að finna fyrir þessum stuðningi eftir allt sem hefur verið sagt og gert. Mér líður eins og í fyrsta skipti sé ég ekki ein,“ sagði  Selma Björk eftir að hún birti greinina.

Birta Rán er að læra ljósmyndum við Tækniskólann sem og tískuljósmyndun hjá umboðsskrifstofunni Elite. Hún átti að gera portrett-verkefni fyrir skólann og hafði því samband við Selmu Björk.

„Myndatakan gekk mjög vel enda Selma Björk mjög falleg. Hún myndast mjög vel og er með betri módelum sem ég hef myndað. Samt hefur hún hefur enga reynslu af módelstörfum,“ segir Birta. „Ég vissi líka að hún hafði áhuga á fyrirsætustörfum og sagði henni að hún gæti haft samband ef ég get hjálpað henni á einhvern hátt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.