Lífið

Tina Fey gerði góðlátlegt grín að GIrls

Tina Fey var gestastjórnandi SNL.
Tina Fey var gestastjórnandi SNL. Nordicphotos/Getty
Gamanleikkonan Tina Fey var gestastjórnandi í sjónvarpsþættinum Saturday Night Live um liðna helgi. Í þættinum var meðal annars gert góðlátlegt grín að sjónvarpsþáttunum Girls.

Fey fór með hlutverk „nýju stúlkunnar“, hinnar albönsku Blertu. Atriðið hefur vakið mikla athygli og þykja leikkonur SNL standa sig frábærlega í hlutverki Hönnuh, Marnie, Jennu og Shoshönnu.

Handritshöfundur og aðalleikkona Girls, Lena Dunham, horfði á SNL ásamt vinkonu sinni, leikkonunni Mindy Kaling.

Kaling birti síðan mynd af Dunham á Twitter ásamt orðunum: „Horfi á Lenu njóta Blertu heima í stofu.“

Dunham endurbirti myndina á eigin Twitter-síðu stuttu seinna. „Skopstæling SNL á Girls var sannur heiður,“ ritaði Dunham við myndina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.