Sá ljón éta buffal Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 28. ágúst 2013 11:00 Valgerður Birna Magnúsdóttir fór til Afríku í sumar. Mynd/Úr eInkasafni
Við sáum ljón éta buffal úr hjörð sem var að drekka úr vatnsbólinu við hótelið. Við sáum samt ekki þegar það veiddi hann, bara þegar það át hann. Svo sáum við fíla og gíraffa, sebrahesta og buffla og sjaldgæfasta stork í heimi! Ljónið var samt flottast." Þannig hefjast lýsingar Valgerðar Birnu Magnúsdóttur, sjö ára, á sumarfríi fjölskyldunnar, en hún ferðaðist um Suður-Afríku. Ferðalagið hófst í Maputo, höfuðborg Mósambík, og endaði í Jóhannesarborg og ferðaðist fjölskyldan um 3.000 kílómetra í bíl. "Við keyrðum mjög, mjög lengi og sáum stundum strúta við veginn. Ég sá einn sofandi, með hausinn ofan í jörðinni." Hvað var skemmtilegast í ferðinni? "Kruger-þjóðgarðurinn. Þar var mesti hiti sem ég hef verið í, 32 stig! Þá fór ég í sundlaugina á hótelinu en síðan beint undir teppi því hún var ísköld. Það var samt ekki alltaf glampandi sól en samt aldrei rigning, því það rignir bara á ákveðnum tíma í Afríku og við vorum ekki á regntímanum. Við sáum líka flóðhesta og antilópur en það eru milljón antilópur í Kruger-garðinum. Svo sáum við líka bleika flamingófugla, eins og eyjar úti í vatninu." Sástu einhver skemmtileg skordýr? "Ég sá eitt stórt gult kóngafiðrildi og svo skoðuðum við líka termítaþúfu. Leiðsögumaðurinn gerði smá gat á þúfuna til að sýna okkur inn í. Þá varð ég smá hrædd um að termítarnir gætu étið mig! En þeir vildu það ekkert. Svo smakkaði ég guava-ís sem var mjög góður." Kynntist þú krökkum í Afríku? "Við heimsóttum eitt barnaheimili þar sem krakkarnir eru mjög fátækir. Það var ein skóladeild og ein yngri deild og þau sem voru að fara í skólann voru einu ári yngri en ég. Við gáfum þeim penna. Svo fórum við í súperbolta með krökkunum, sem er næstum eins og fótbolti nema það er ekkert mark, sem er mjög skemmtilegt." Skildirðu hvað krakkarnir sögðu? "Við þurftum ekkert að tala saman. Það var enginn dómari í leiknum og engar reglur. Við lékum okkur líka á ströndinni og ég á heilan lista yfir skeljarnar sem ég tíndi. Ég tíndi meira en fimmtíu skeljar. Við systir mín fórum með skeljarnar í bað og þá var allt í einu lifandi krabbi í einni skelinni. Við vildum ekki hafa hann í baðinu og pabbi fór með hann út í sjó." Langar þig aftur til Afríku? "Já, en það verður samt ekki fyrr en eftir minnst sjö ár."
Mest lesið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Fleiri fréttir Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Sjá meira