Nikka fyrir fermingarpeninginn Hanna Ólafsdóttir skrifar 19. ágúst 2013 08:30 Fimur á nikkunni Þórður Marteinsson með harmonikkuna sína, sem er 57 ára af ítölskum uppruna.Fréttablaðið/Valli „
Þetta er bara mjög gaman. Ég hef líka verið að spila úti í sumar og það hefur veitt mér mikla gleði og vonandi lífgað upp á stemmninguna í miðbænum,“ segir Þórður Marteinsson harmonikkuleikari en hann hefur undanfarin misseri spilað fyrir kaffihúsagesti Le Bistro á Laugaveginum. Þórður, sem er 77 ára, segir að hann hafi gaman af því að spila fyrir gesti og gangandi og spili þá helst dægurlög og gömlu dansana. Að sögn Þórðar hefur harmonikkuáhuginn blundað í honum síðan hann var unglingur og notaði hann meðal annars fermingarpeningana til að kaupa sína fyrstu nikku. „Ég átti þá harmonikku í fjögur ár en seldi hana síðar þegar ég fór í nám í húsasmíði. Svo leið langur tími, eða 27 ár, þangað til ég eignaðist mína næstu.“ Þórður er að mestu sjálfmenntaður í harmonikkuleik en segist hafa farið á stutt námskeið til að læra undirstöðuatriðin. Hann hefur þó komið víða fram og hefur meðal annars komið fram með Capri tríó. „Ég byrjaði 1998 að leika fyrir dansi hjá félagi eldri borgara með Capri tríó. Við spiluðum á hverjum sunnudegi í 21 ár og komum fram í alls 806 skipti. Ég er með þetta allt skrifað hjá mér.“ Auk þess að spila á Le Bistro gerir Þórður mikið af því að spila á hinum ýmsu dagvistarstofnunum. „Ég fer sem sjálfboðaliði og spila fyrir aldraða og fólk með sjúkdóma á borð við alzheimer. Það veitir manni ánægju að sjá hvað tónlistin gerir mikið fyrir fólk og veitir því mikla gleði. Það er það sem þetta snýst allt um.“ Þórður starfaði sem húsvörður í Öldutúnsskóla í 35 ár en lét af störfum eftir veikindi árið 2000. Auk harmonikkuleiksins eru hjólreiðar hans aðaláhugamál og byrjar hann hvern morgun á því að hjóla um Hafnarfjörðinn. „Það má segja að ég hafi verið lengi að útskrifast úr skólanum,“ segir Þórður léttur. „Ég hefði viljað vinna lengur en ég greindist með krabbamein og neyddist til að hætta að vinna. Ég fór í aðgerð og það fór sem betur fer, en núna rækta ég líkama og sál með tónlistinni og hjólreiðum. Það heldur manni gangandi.“
Mest lesið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist „Þetta parísarhjól sökkar“ Menning Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Lífið „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Nýjasta sumartrendið í boði Travolta Tíska og hönnun Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Tónlist Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Lífið Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Tónlist Fleiri fréttir „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Valgerður og Kjartan Vald eiga von á barni Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Sjá meira