Innlent

Kraftwerk spilar á Iceland Airwaves

MYND/GETTY
Þýska tölvupoppsveitin Kraftwerk kemur fram á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni í ár. Sveitin mun stíga á stokk sunnudaginn 3. nóvember. Á vefsíðu hátíðarinnar kemur fram að Kraftwerk muni flytja magnað þrívíddarverk sem vakið hefur mikla athygli undanfarið.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem sveitin sækir Ísland heim en hún kom fram í Kaplakrika árið 2004.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×