Innlent

Ákærður fyrir að sparka í löggu

26 ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir að sparka í lögreglumann við skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur sumarið 2011.

Atvikið átti sér stað fyrir utan skemmtistaðinn Hvítu Perluna í Austurstræti Reykjavíkur aðfaranótt 30. júlí 2011. Maðurinn er ákærður fyrir brot á valdstjórninni með því að hafa sparkað í vinstri fótlegg lögreglumannsins og hótað honum líkamlegu ofbeldi.

Skömmu síðar hótaði hann tveimur öðrum lögreglumönnum líkamlegu ofbeldi í lögreglubifreið á leiðinni á lögreglustöðina við Hverfisgötu.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×