Tryggja þarf snurðulaust samstarf við heri Brjánn Jónasson skrifar 10. apríl 2013 12:00 Valgerður Bjarnadóttir
Tryggja þarf að borgaralegar stofnanir hér á landi geti unnið snurðulaust með erlendum herjum að björgunarstörfum eða til að takast á við náttúruhamfarir þar sem slík mál eru almennt á höndum herja nágrannaríkjanna. Þetta er meðal þess sem fjallað er um í skýrslu nefndar sem fjallað hefur um þjóðaröryggisstefnu Íslands síðustu mánuði. Valgerður Bjarnadóttir, formaður nefndarinnar, segir almennt samstöðu innan hennar um flest mál. Skýrslan verður væntanlega afhent utanríkisráðherra fyrir kosningar. Skýrslan verður ekki mikil að vöxtum, rétt rúmar tíu blaðsíður, en í henni verður ekkert óþarfa orðaskrúð, segir Valgerður. Utanríkisráðherra, eða arftaki hans eftir kosningar, mun svo nota skýrsluna sem grunn til að móta þjóðaröryggisstefnu Íslands. Valgerður segir að lagt verði til grundvallar að Ísland sé herlaus þjóð sem grundvalli sínar varnir á gömlum stoðum; aðild að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningnum við Bandaríkin. Þá verði lögð áhersla á málefni norðurslóða. „Það hefur verið ágætis samstaða í nefndinni um hvaða atriði skuli leggja áherslu á,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem á sæti í nefndinni. Hún á von á því að hægt verði að afhenda skýrsluna á næstunni.
Mest lesið Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Innlent Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Innlent Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Innlent „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísar Klöru Innlent Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Innlent Fleiri fréttir Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Vestfirðingar fagna í kvöld: „Þetta er bara mjög stórt“ Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Hlaupið aftur í rénun eftir vöxt í nótt Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Hver verður Íslandsmeistari í hrútaþukli? Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Akstursíþróttasamfélagið harmi slegið, unglingadrykkja á Menningarnótt og hrútaþukl Evrópusambandið, menntamál, stýrivextir og Gasa í Sprengisandi „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Algjört hrun í fálkastofninum Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Jökulhlaupið í hægum vexti Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Grunur um brot gegn fleiri börnum Grunur um brot gegn öðru barni, alvarlegt slys og tíðindi á Menningarnótt Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Vínsali býst við ákæru, kúnnalisti Epstein og stemming í bænum Reiðhjólabændur með vaktað hjólastæði í Traðarkoti til miðnættis Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Sjá meira