Býður upp á að menn fresti málum út í hið óendanlega Stígur Helgason skrifar 11. apríl 2013 12:00 Verjendur í Al Thani-málinu halda blaðamannafund.
Sérstakur saksóknari telur að sú ákvörðun Gests Jónssonar og Ragnars H. Hall, verjenda í Al Thani-málinu svokallaða, að mæta ekki í réttinn í dag gæti kallað á breytingar á sakamálalögum. Annars sé búið að opna sakborningum leið til þess að fresta málum sínum út í hið óendanlega. Ólafur tekur fram að enn eigi eftir að koma í ljós hvort verjendurnir standi við yfirlýsingar sínar og láti ekki sjá sig í dómsalnum. Ragnar hefur lýst því afdráttarlaust yfir og Gestur staðfesti það í samtali við Fréttablaðið í gær. „Við munum hvorugur mæta,“ sagði Gestur. Allir sem Fréttablaðið hefur rætt við eru sammála um að dómari eigi þá varla annarra kosta völ en að fresta aðalmeðferðinni, sem átti að hefjast í dag, og gefa nýjum verjendum tækifæri til að setja sig inn í málið. Til þess hafa Gestur og Ragnar haft um fjögur ár, frá því að rannsókn hófst. Verði það raunin er óvíst hversu lengi málinu verður frestað, en jafnvel er talið hugsanlegt að það verði fram yfir sumarfrí dómstólanna, sem sagt fram á næsta haust. Ákvörðun verjendanna er án fordæma. „Þeir sögðu sjálfir að þetta væri fáheyrt og við teljum að það standist einfaldlega ekki að þetta sé hægt. Þetta á ekki að gerast,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Aðspurður samsinnir hann því að verði málinu frestað, eins og allt stefnir í, bjóði það upp á að verjendur sakborninga, og svo eftirmenn þeirra, segi sig ítrekað frá sama málinu til að fá því frestað, þess vegna að eilífu. „Þá er búið að gefa ákveðinn tón og gæti leitt til þess að menn þyrftu að breyta lögum til að girða fyrir þetta,“ segir Ólafur Þór Hauksson.
Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira