Aðalmeðferð frestað um óákveðinn tíma 11. apríl 2013 09:25 Frá réttarhöldunum í morgun. Mynd/ GVA.
Aðalmeðferð í al-Thani málinu svokallaða var frestað um óákveðinn tíma í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Verjendur Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings og Ólafs Ólafssonar, eins af stærstu eigendum bankans, Ragnar H. Hall og Gestur Jónsson, mættu ekki. Þeir höfðu áður krafist þess af dómara að verða leystir undan skyldum sínum og boðað að þeir myndu ekki mæta í aðalmeðferðina. Nýir verjendur tvímenninganna mættu, það eru þeir Ólafur Eiríksson, sem var skipaður verjandi Sigurðar Einarssonar, og Þórólfur Jónsson, sem var skipaður verjandi Ólafs Ólafssonar. Eins og fram hefur komið eru þeir Sigurður, Ólafur, Magnús Guðmundsson og Hreiðar Már Sigurðsson, ákærðir fyrir markaðsmisnotkun og umboðssvik í viðskiptum við Sheik Hamad bin Kalifa al-Thani með 5% hlut í Kaupþingi rétt fyrir hrun. Allir mættu þeir fyrir dóm í morgun, nema Magnús Guðmundsson. Um 50 vitni munu gefa skýrslu fyrir dómi og er líklega óhætt að segja að þetta sé eitt umfangsmesta dómsmál sem hefur ratað fyrir dómstóla hér á landi. Björn Þorvaldsson saksóknari hjá embætti sérstaks saksóknara, krafðist þess að réttarfarssekt yrði lögð á Gest og Ragnar. Dómari bókaði kröfuna en tók ekki ákvörðun um hana. Greinilegt er að töluverður áhugi er á málinu en stærsti réttarsalurinn í Héraðsdómi Reykjavíkur var fullur í morgun. Þar voru saman komnir innlendir og erlendir blaðamenn auk starfsmanna sérstaks saksóknara og laganema.
Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira