Björn Hlynur silkimjúkur og einlægur Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 25. september 2013 15:00 Björn Hlynur Haraldsson í hlutverki Leifs lögfræðings í þáttunum Ástríði.
Leikarinn Björn Hlynur Haraldsson stelur senunni í nýrri þáttaröð Ástríðar. Þar leikur hann yfirvegað og ákveðið kvennagull sem fangar hjörtu kvenna á og við skjáinn. „Boðorð Leibba er: Allt sem þér viljið að aðrir gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. Leifur er „no bullshit“-gæi og stundum kannski aðeins of mikið, eins og fram mun koma í þáttunum,“ segir Björn Hlynur Haraldsson um persónu Leifs lögfræðings sem hann ljáir líf og limi í nýrri þáttaröð Ástríðar. Björn Hlynur segir þá Leif eiga fátt sameiginlegt. „Við erum svipaðir í útliti þótt ég sé ekki jafn síðhærður og Leifur. Hann er sérstök blanda af gallhörðum lögfræðingi og silkimjúkum, einlægum pilti úr Smáíbúðahverfinu.“ Er Leifur þá öfundsverður? „Nei, ég get ekki sagt það. Ég öfunda engan mann. Öfund er af hinu illa. Ég bið alla sem þjást af því að vinsamlegast hætta því.“ Björn Hlynur hafði ekki séð alla fyrri þætti Ástríðar þegar hann ákvað að vera með. „En ég vissi út á hvað þættirnir gengu og vildi fá að vera með. Mig langaði að taka þátt í verkefni með Silju Hauksdóttur sem er sniðug stelpa og góður leikstjóri. Svo hafði ég lúmskan grun um að þetta gæti orðið gaman því skemmtilegt fólk tengdist fyrri þáttaröðinni, eins og lærimeistari minn Kjartan Guðjónsson.“ Að sögn Björns Hlyns kemur Leifur inn í þættina sem mótherji Ástríðar í máli sem þau hafa karpað um í fjölmiðlum. Síðan tengist þau böndum sem best sé að halda sér saman um nú. „Mér fannst á allan hátt skemmtilegt að taka þátt í Ástríði. Ég lagði sjálfan mig til í hlutverk Leifs; það er það eina sem ég get gefið. Svo bæti ég við ímynduðum hugmyndum mínum, leikstjórans og höfunda um einstaklinginn. Mér finnst mikilvægt að uppskáldaðar persónur séu tvíhliða og að eitthvað komi á óvart í fari þeirra. Þannig eru allar manneskjur. Við sýnum eina hlið en felum aðra og það er hliðin sem áhorfendur verða að fá að sjá. Mitt starf er því að sjá til þess að persónan sé ekki einhliða,“ útskýrir Björn Hlynur. Hann segir Ástríði mikilvægan minnisvarða um samtímann. „Þættirnir fjalla um íslenskan hvunndagsveruleika sem fyrir minn smekk mætti gera hærra undir höfði í leiknu efni. Það vilja áhorfendur sjá og því eigum við að sinna. Flestir höfundar sem skipt hafa máli í gegnum aldirnar hafa skrifað um sitt nánasta umhverfi, samfélag sem þeir bjuggu í og þekktu. Því mættu höfundar í ríkari mæli draga upp spegilmynd af samfélaginu.“ Björn Hlynur vinnur nú að sjónvarpsþáttunum Hrauninu sem eru framhald af Hamrinum. Hann leikur líka í þáttunum The Borgias, sem teknir voru í Búdapest, kvikmynd eftir mexíkóska leikstjórann Roberto Schneider, þar sem hann leikur á móti vini sínum Gael Garcia Bernal, og spennutryllinum Grafir og bein. „Aðalverkefnið er þó fjármögnun á minni fyrstu mynd sem leikstjóri og handritshöfundur, og er byggð á leikriti mínu Dubbeldusch. Við eiginkonan vinnum nú að heimildarþáttaröðinni Reimleikar í Reykjavík og ég er með tvö leikrit í smíðum. Þá er ég orðaður við erlent hlutverk sem ég get ekki upplýst um að sinni.“
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Útför Björgvins opin almenningi Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Tónlist Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira