Fagna Ramadan í Skógarhlíð Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 9. júlí 2013 18:58 "Þetta er mjög gott tækifæri fyrir sérhvern mann til að endurmeta líf sitt, stöðu sína og samband sitt við guð," segir Ahman Taha Seddeeq. MYND/GETTY
Föstumánuðurinn Ramadan, mikilvægasta tímabil í trúarlífi múslima, gengur í garð á morgun. Múslimar á Íslandi fagna föstunni í fyrsta skipti í menningarsetri sínu í Ýmishúsi. Á Ramadan fasta múslimar frá sólarupprás að sólarlagi. Þeir sem hafa heilsu til skulu ekki neita matar eða drykkjar og hollt er að láta kynlífið vera. Tilgangurinn er að hreinsa og endurnýja líkama og sál. „Þetta er mjög gott tækifæri fyrir sérhvern mann til að endurmeta líf sitt, stöðu sína og samband sitt við guð," segir Ahman Taha Seddeeq, imam eða prestur, hjá Menningarsetri múslima á Íslandi. „Í lok mánaðarins reynir maður að koma út úr þessum tíma sem ný persóna, breyta gömlum ósiðum og því sem honum líkar ekki í lífi sínu." Imam Seddeeq leiddi kirkjugesti í bæn en hún er með þeim síðustu áður en Ramadan hefst.„Núna höfum við stóran stað. Konurnar biðjast fyrir á svölunum og karlarnir biðjast fyrir þarna niðri. Við þökkum Allah fyrir þetta.“mynd/gettyÞað er þó hægara sagt en gert fyrir þá tæplega þúsund múslima hér á landi að fasta út frá gangi sólar, sérstaklega á sumrin. Imam Ahmad Seddeq bendir á að fastan sé í raun erfiðari í heimalandi sínu, Egyptalandi, þar sem hitinn er mikill. Það sem skipti í raun mestu máli sé að hafa fallegt og friðsælt bænahús til að leita í. Þess vegna sé ný moska menningarsetursins kærkominn griðarstaður. „Við vorum áður með lítinn sal og það var erfitt fyrir okkur að bjóða upp á bænir og gera það sem við viljum gera vegna plássleysis. Núna höfum við stóran stað. Konurnar biðjast fyrir á svölunum og karlarnir biðjast fyrir þarna niðri. Við þökkum Allah fyrir þetta.“
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira